Vildi bara styðja Ingibjörgu 13. október 2005 19:12
Helga Jónsdóttir, borgarritari og fyrrverandi aðstoðarkona Steingríms Hermannssonar, gekk eingöngu í Samfylkinguna til þess að styðja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í formannskjöri flokksins. Nafn Helgu átti hvergi að koma fram en það komst í hendur stuðningsmanna Össurar Skarphéðinssonar og í kjölfarið var starfsmanni á skrifstofu flokksins sagt upp störfum. Helga var á árum áður aðstoðarkona Steingríms Hermannssonar, þáverandi forsætisráðherra, og faðir hennar sat á þingi fyrir Framsóknarflokkinn. Í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 sagðist hún einvörðungu hafa skráð sig í Samfylkinguna til þess að hafa áhrif á úrslitin í formannskjörinu. Hún hefði ekki tekið beinan þátt í stjórnmálastarfi í nærri tvo áratugi og það myndi ekki breytast nú. Aðspurð segist Helga ekki vera skráð í Framsóknarflokkinn og þó að hún hafi skráð sig í Samfylkinguna ætli hún sér ekki að bjóða sig fram til trúnaðarembætta fyrir flokkinn. Söndru Franks, varaþingmanni og starfsmanni á skrifstofu Samfylkingarinnar, var í gær sagt upp störfum á skrifstofunni eftir að í ljós kom að hún braut vinnureglur flokksins við meðferð á gögnum. Samkvæmt heimildum fréttastofu bárust kvartanir frá stuðningsmönnum Ingibjargar Sólrúnar, eftir að Helga fékk boð frá starfsstöð Össurar Skarphéðinssonar um að mæta í sumarfagnað hjá honum. Hún hafði þá nýlega gengið í Samfylkinguna til þess að styðja Ingibjörgu Sólrúnu með þeim skilyrðum að nafn hennar kæmi hvergi fram. Því þótti stuðningsmönnum Ingibjargar einsýnt að átt hefði verið við kjörskrá flokksins og fljótlega bárust böndin að Söndru, sem var svo sagt upp í gær.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira