Hissa á viðkvæmni barnageðlækna 9. maí 2005 00:01
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra er hissa á því hversu viðkvæmir barnageðlæknar eru fyrir umræðu um þá miklu aukningu sem orðið hefur á notkun barna á ofvirknilyfjum. Barnageðlæknafélag Íslands sendi í gærkvöldi frá sér langa og nokkuð harðorða yfirlýsingu þar sem gagnrýni á lyfjanotkun er sögð byggð á fordómum og fáfræði. Þar er komið víða við en vinnubrögð heilbrigðisráðuneytisins í málefnum barna með geðraskanir eru einkum gagnrýnd. Þar segir til dæmis: „Upplýsingar um hvar skórinn kreppir og hvaða úrræði séu vænleg til árangurs hafa legið hjá ráðuneytinu í áraraðir...vinnulag heilbrigðisráðuneytisins hefur verið hægt og ómarkvisst." Jón Kristjánsson heilbirgðisráðherra segist hissa á því hvað barnageðlæknar séu viðkvæmir við umræðunni því hann hafi ekki haft neina ásakanir uppi um að lyf séu ekki nauðsynleg og ekki verið með ásakanir í garð þeirra. Hann vísi því einnig á bug að ekkert hafi verið gert í ráðuneytinu í geðheilbrigðismálum almennt en hann verði sem ráðherra þessara mála að horfa á þær tölur sem blasi við í skýrslu Sameinuðu þjóðanna um þessi mál og grafast fyrir um það hverjar orsakirnar séu. Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna kemur fram að notkun ofvirknilyfja hérlendis hefur meira en fjórfaldast á fjórum árum. Jón segir barnageðlækna bæði hafa haft og munu hafa aðgang að allri vinnu í málaflokknum. En er verið að blása þetta upp, búa til vandamál þar sem það er ekki? Jón segist ekki hafa gert það því hann hafi sagt það í umræðum á þingi að lyf væru nauðsynlegur þáttur í heilbrigðisþjónustunni og hann standi við það. Notkun þessarar lyfja hafi þó þróast með þeim hætti að hann geti ekki annað en látið skoða það.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira