Vill að ákvörðun verði endurskoðuð 29. apríl 2005 00:01
Friðargæsluliðar eru aldrei í fríi, segir utanríkisráðherra, og hvetur til þess að hrundið verði þeirri ákvörðun að synja þeim sem særðust í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl um bætur frá Tryggingastofnun. Fram kom í fréttum í gær að íslensku friðargæsluliðarnir sem særðust í sjálfsmorðsárás í Afganistan í fyrra fengju ekki bætur frá Tryggingastofnun þar sem þeir hefðu ekki verið í vinnunni þegar árásin var gerð. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna, tók þetta mál upp í umræðum um utanríkismál í þinginu í dag. Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði það misskilning að mennirnir hefðu verið ótryggðir þótt þeir hefðu ekki verið taldir falla undir bótareglur Tryggingastofnunar. Mennirnir væru auðvitað tryggðir. Í greinargerð sem Tryggingastofnun sendi frá sér í dag kemur fram að allir ríkisstarfsmenn séu tryggðir allan sólarhringinn hvort sem þeir eru í vinnu eða utan hennar. Sú trygging sé í umsjón ríkislögmanns. Einnig hafi utanríkisráðuneytið upplýst að allir friðargæsluliðar séu tryggðir sérstaklega á vegum ríkisins þegar þeir séu erlendis vegna starfa sinna. Í þinginu sagði Davíð það lakara Tryggingastofnun hefði synjað friðargæsluliðunum um bætur á grundvelli svara frá utanríkisráðuneyti. Hann teldi fyrir sitt leyti að þeir væru aldrei í neinu fríi heldur yrðu allar stundir að vera viðbúnir hinu óvænta og þegar þeir fengju tilmæli um að gegna ákveðnum störfum væri það ekki svo að menn gætu undan því vikist með góðu móti. Hann væri því þeirrar skoðunar að þeir sem særðust í sjálfsmorðsárásunum hefðu ekki verið í neinu fríi. Hann vildi gjarnan og vonaðist til að við áfrýjun málsins yrði tekið á málum þeirra af meiri sanngirni.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Sjá meira