Framtíðarhópi gert erfitt fyrir 11. apríl 2005 00:01
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að ummæli Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar, um að uppskera framtíðarhóps Samfylkingarinnar verði rýr, séu ótímabær og ósmekkleg. Hún segir ummæli hans gera hópnum erfitt fyrir í aðdraganda landsfundar. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, gaf ekki mikið fyrir vinnu framtíðarhóps Samfylkingarinnar í Silfri Egils í gær en mótframbjóðandi hans til formennsku í flokknum, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hefur leitt þá vinnu um tveggja ára skeið. Össur sagði í þættinum að að hann teldi að úr framtíðarnefndini kæmi miklu minna en það sem búið hefði verið að lofa. Ingibjörg segir þessi ummæli Össurar koma á óvart þar sem hann hafi aldrei viðrað gagnrýni á vinnu hópsins áður. Þar að auki finnist henni ummælin ótímabær og heldur ósmekkleg á þessum tímapunkti því hópurinn hafi ekki skilað af sér sinni vinnu. Ingibjörg segir að vinna hópsins verði kynnt á landsfundinum í maí en á tillögum framtíðarhópsins er ætlað að byggja nýja grundvallarstefnu og nýja stefnulýsingu Samfylkingarinnar. Hún segir ómögulegt að segja til um hvort Össur hafi með þessu gjaldfellt vinnu hópsins áður en umræðan fer fram á landsfundinum. Hann geri hópnum þó erfitt fyrir og setji vinnu hans í erfitt ljós í aðdraganda landsfundarins. Guðmundur Árni Stefánsson sagði sig úr starfi hópsins fyrir um tveimur vikum, að sögn vegna óánægju með vinnubrögð hópsins. Guðmundur er yfirlýstur stuðningsmaður Össurar í formannsslagnum og því vaknar sú spurning hvort úrsögn hans tengist þeirri baráttu. Ingibjörg segir að það kunni vel að vera. Það séu alltaf einhverjir sem taki sér það fyrir hendur að hanna atburðarás, eins og hún þekki úr pólitíkinni. Hún ætli þó ekkert að fullyrða um það.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira