Meirihlutinn óstarfhæfur 5. apríl 2005 00:01
Meirihluti sveitarstjórnar Skagafjarðar er óstarfhæfur eftir að Bjarni Maronsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir að upp væri kominn trúnaðarbrestur milli sín og forseta sveitarstjórnar, Gísla Gunnarssonar Sjálfstæðisflokki. Bjarni gegnir því oddastöðu í sveitarstjórn þar sem auk hans eru fjórir fulltrúar í meirihluta Sjálfstæðisflokks og Vinstri-grænna, sem eru jafnmargir og í minnihluta. Bjarni segist ekki treysta sér til þess að styðja Gísla áfram sem forseta sveitarstjórnar. "Aðdragandi málsins er sá að á síðasta sveitarstjórnarfundi, síðastliðinn fimmtudag, tók Gísli einn þá ákvörðun að vísa mér af fundi vegna meints vanhæfis og kallaði til varamann minn við afgreiðslu máls. Þar tel ég að hann hafi misbeitt valdi sínu því honum bar að bera tillögu sína undir fundinn," segir Bjarni. Málið sem fjalla átti um varðaði tengingu Þverafellsvegar við Sauðárkrók. Gísli taldi Bjarna vanhæfan til þess að fjalla um málið vegna þess að nálægt vegstæðinu eru fyrirtæki sem tengjast Kaupfélagi Skagfirðinga, en Bjarni er í stjórn þess fyrirtækis. Bjarni segir að meirihlutinn sé óvirkur. "Gísli hlýtur að eiga næsta leik í þessu máli, því hann ber ábyrgð á ástandinu," segir Bjarni. Ársæll Guðmundsson sveitarstjóri í Skagafirði vildi ekki tjá sig um málið. Ekki náðist í Gísla, sem staddur er í útlöndum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira