Vildu láta reyna á meirihluta 1. mars 2005 00:01
Sjálfstæðismenn báru fram tillögu á borgarstjórnarfundi í dag um að viljayfirlýsing borgarstjórnar og ríkisstjórnarinnar um sölu á hlut Reykjavíkur og Akureyrar í Landsvirkjun yrði borin undir atkvæði. Komið hefði fram andstaða hjá vinstri - grænum sem skapaði óvissu um hvort meirihluti væri fyrir málinu. Borgarstjóri segir það af og frá. Eftir að borgarfulltrúar höfðu samþykkt að slík atkvæðagreiðsla mætti fara fram lýsti Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri því yfir að hún myndi bera upp tillögu um að vísa málinu frá. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir ótrúlegt að borgarstjóri þori ekki að setja eigin viljayfirlýsingu í dóm borgarstjórnar. Það staðfesti vandræðagang og klofning innan Reykjavíkurlistans í málinu en vinstri - grænir hafi áskilið sér allan rétt til að hafna sölunni á hlut Reykjavíkurborgar þrátt fyrir viljayfirlýsinguna. Steinunn Valdís Óskarsdóttir segir málið hins vegar óumdeilt. Hingað til hafi ekki tíðkast að vera með stuðningsyfirlýsingar við dagleg störf borgarstjóra. Í því ljósi sé uppákoman kómísk. Hún hafi hins vegar fullt og óskorað traust borgarfulltrúa, bæði í minnihluta og meirihluta, og það hafi komið glögglega fram á fundi borgarstjórnar í dag.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Sjá meira