Á listann fyrir ríkisstjórnarfund 26. janúar 2005 00:01
Ísland var komið á lista hinna viljugu áður en ríkisstjórnarfundur var haldinn þann 18. mars 2003. Forsætisráðherra sagði í yfirlýsingu á dögunum að ákvörðun um að styðja innrásina hefði verið tekin í kjölfar fundarins. Í yfirlýsingu sem send var frá forsætisráðuneytinu í byrjun síðustu viku var greint frá því að á ríkisstjórnarfundi sem haldinn var þann 18. mars 2003 hafi Íraksmálið verið fyrst á dagskrá og að í kjölfar þess fundar hafi Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson ákveðið að styðja aðgerðir undir forystu Bandaríkjamanna og Breta um að afvopna Saddam Hussein og hafi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi verið tilkynnt um það. Ríkisstjórnarfundir eru að jafnaði haldnir að morgni dags, oft klukkan tíu. Sjónvarpsstöðin CNN greindi hins vegar frá því nokkrum klukkutímum fyrir fund ríkisstjórnarinnar að Ísland væri á listanum yfir lönd sem styddu innrásina. Á vefsíðu CNN má sjá tímasetningu á því hvenær fréttin er sett inn og þar kemur klárlega fram að Ísland var komið á listann margfræga að minnsta kosti fimm tímum fyrir ríkisstjórnarfundinn. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, greindi frá því á blaðamannafundi þann 17. mars að allan morguninn hefði hann rætt við vini og bandamenn Bandaríkjanna um Íraksstríðið og að hann ætti eftir að tala við fjölda annarra að blaðamannafundinum loknum. Aðfaranótt 18. mars var svo nafn Íslands komið á lista ásamt nafni 29 annarra landa. Þetta staðfesti Halldór Ásgrímsson í raun í viðtali á mánudaginn þegar hann sagði að það hefði komið sér illa að greint hefði verið frá stuðningi Íslands á CNN áður en það var tilkynnt hér. Hann sagði að vitað hefði verið að leitað hefði verið til hóps þjóða í málinu. Hins vegar hefði ekki verið vitað hvernig málið yrði kynnt. Það hefði viljað svo til að fyrstu upplýsingarnar um aðild Íslands að innrásinni í Írak hefðu komið fram á CNN og það hefðu Bandaríkjamenn gert án þess að bera það undir hérlend stjórnvöld. Það hefði komið sér stjórnvöld hefðu ætlað sér að tilkynna það sérstaklega innanlands. Sá stuðningur hefði því verið birtur án vitundar íslenskra stjórnvalda. Yfirlýsingin um að ákvörðunin hafi verið tekin í kjölfar fundarins stenst því ekki miðað við framangreindar upplýsingar. Ísland var komið á listann áður en ríkisstórnarfundur var haldinn þann 18. mars. Því hefur verið haldið fram að málflutningur ríkisstjórnarinnar í þessu máli hafi verið villandi en í þetta skiptið er hann beinlínis rangur.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Sjá meira