Ekkert fararsnið á Alfreð 12. janúar 2005 00:01
Alfreð Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir ekkert fararsnið á sér úr borgarpólitík. Hann blæs á þau sjónarmið samflokksmanna sinna í Framsóknarflokknum að tími sé kominn til að hann snúi sér að öðrum verkefnum og segir gagnrýnina eiga rætur að rekja til vonbrigða þeirra með eigin framgöngu. Rammt kveður að gagnrýni á Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, á umræðuvettvangi framsóknarmanna á Netinu, Hriflu.is. Gestur Kr. Gestsson, formaður Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis norður, sagði Alfreð eiga að snúa sér að öðrum verkefnum og viðlíka viðhorf má lesa í pistli Guðjóns Ólafs Jónssonar, varaþingmanns Framsóknarflokksins. Guðjón segir engan sérfræðing þurfa til að átta sig á að eftir 35 ára starf að borgarmálum hljóti að vera farið að styttast eitthvað í annan endann á stjórnmálaferli Alfreðs Þorsteinssonar. Alfreð segir að ekkert fararsnið sé á honum. Aftur verið kosið á næsta ári og hann hafi mjög öflugan stuðning meðal framsóknarmanna í Reykjavík og þó að einhverjir einstaklingar, hvort sem þeir heiti Gestur eða Guðjón Ólafur, séu með einhverjar sérstakar skoðanir á því breyti það engu fyrir hann. Aðspurður um það hvernig það sé að sitja undir gagnrýni flokksfélaga segir Alfreð að þeir sem þarna eigi í hlut eigi harma að hefna vegna þess að þeir séu óánægðir með að sitja ekki í þeim nefndum og ráðum á vegum Reykjavíkurborgar sem þeir hafi sóst eftir. Guðjón Ólafur hafi lengi verið formaður stjórnar Strætós en vegna breytinga hafi hann þurft að víkja úr því sæti. Gestur hafi sóst eftir sæti í nefndum og ráðum á vegum borgarinnar en ekki haft stuðning til þess. Alfreð segist búast við að þetta hafi haft einhver áhrif á skoðanir þeirra.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sjá meira