Óeining í stjórnarskrárnefnd 5. janúar 2005 00:01
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, segir skipunarbréf stjórnarskrárnefndarinnar bjóða heim óeiningu strax í upphafi starfsins. Jónína Bjartmarz, alþingismaður Framsóknarflokksins, sakar Samfylkinguna um geðvonsku á nýju ári. Stjórnarkrárnefndin á samkvæmt skipunarbréfi að skoða fyrsta, annan og fimmta kafla stjórnarskrárinnar sem taka einkum til hlutverks forseta í stjórnskipan landsins svo og dómstólanna. Ingibjörg Sólrún segist hafa rætt þetta við Jón Kristjánsson, formann nefndarinnar, og hann hafi fullvissað hana um að ekki standi til að binda hendur nefndarinnar. Hún segist ekki vita hvernig beri að skilja hvers vegna þetta hafi ratað inn í erindisbréf nefndarinnar. Samfylkingin telur ýmislegt benda til að fyrst og fremst eigi að ræða hluverk forsetans en óskabreytingar Samfylkingarinnar, til að mynda að landið verði eitt kjördæmi og að löggjafarvaldið verði styrkt gegn framkvæmdavaldinu, sé ekki á dagskrá. Ingibjörg segir vinnu nefndarinnar dæmda til að mistakast ef efna eigi til hennar í einhverri óeiningu og það séu hagsmunir þjóðarinnar allrar að menn nái vel saman í nefndarvinnunni. Jónína Bjartmarz, fulltrúi Framsóknarflokksins í nefndinni, segir að Samfylkingin hafi farið með vitlausan fótinn fram úr á nýju ári. Það sé ekkert í skipunarbréfinu sem banni að stjórnarskráin sé öll undir en hún telur að það sé enginn vilji, ekki einu sinni hjá Samfylkingunni, að fara að skoða mannréttindakafla stjórnarskrárinnar núna. Og Jónína sakar Samfylkinguna um að búa til ágreining og vera með óþarfa geðvonsku sem engin ástæða sé til. „Þeir eiga að vera menn að meiri að taka þátt í þessu starfi af fullum heilindum strax í byrjun,“ segir Jónína.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira