Ágreiningur um hlutverk nefndar 5. janúar 2005 00:01
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra skipaði í gær Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, formann stjórnarskrárnefndar, sem hefur það hlutverk að endurskoða stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Jón segir mikið verkefni framundan: "Ég vonast til að horft verði til framtíðar í starfi nefndarinnar og nefndin verði ekki of bundin af fortíðinni". Jón segir að samkvæmt skipunarbréfi nefndarinnar verði hlutverk hennar að endurskoða fyrsta, annan og fimmta kafla stjórnarskrárinnar sem fjalla meðal annars um hlutverk Alþingis og forseta Íslands. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, og fulltrúi í nefndinni lýsir undrun sinni á skipunarbréfinu. "Við setjumst ekki í þessa nefnd til að taka við skipunum Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar. Við teljum margt brýnna en að endurskoða þessi atriði. Við leggjum áherslu á þjóðaratkvæðagreiðslur, að landið sé eitt kjördæmi og að auðlindir séu sameign þjóðarinnar." Ögmundur Jónasson, Vinstri grænum, segist ekki kannast við að gert hafi verið ráð fyrir að verkefni nefndarinnar yrðu takmörkuð við vissa þætti stjórnarskrárinnar. Jón Kristjánsson bendir á að stutt sé síðan mannréttinda- og kosningakaflarnir hafi verið endurskoðaðir. Aðrir nefndarmenn eru Jónína Bjartmarz, fulltrúi Framsóknarflokksins en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru Geir H. Haarde fjármálaráðherra og varaformaður, Þorsteinn Pálsson sendiherra og Birgir Ármannsson alþingismaður. Auk Össurar Skarphéðinssonar er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varaformaður fulltrúi Samfylkingarinnar og formennirnir Steingrímur J. Sigfússon og Guðjón Arnar Kristjánsson fulltrúar Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins. Fjögurra manna sérfræðinganefnd mun starfa með nefndinni, en formaður hennar er Eiríkur Tómasson lagaprófessor. Nefndinni er ætlað að skila tillögum til breytinga á stjórnarskránni í ársbyrjun 2007.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Myrtu fjörutíu manns í kirkju Erlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira