Ár fjölmiðlafrumvarpsins 31. desember 2004 00:01
Jafnvel þótt skattar hafi verið lækkaðir, borgarstjóri sagt af sér, íslensk fyrirtæki haslað sér völl á erlendri grund sem aldrei fyrr og að þjóðlífið hafi lamast vegna kennaraverkfalls voru allir viðmælendur Fréttablaðsins á einu máli um að fjölmiðlafrumvarpið stæði upp úr. Rætt var við vel á annan tug manna sem hafa að atvinnu að rýna í stjórnmál. Egill Helgason, Silfri Egils orðaði þetta svo: "Þarf að spyrja: Synjun Ólafs Ragnars á fjölmiðlalögunum. Segja það ekki allir?" Keppinautur hans um hylli áhugamanna um pólitík á sunnudögum, Guðmundur Steingrimsson á Skjá einum er sammála um að synjun Ólafs Ragnars standi upp úr: "Atburðurinn var sveipaður dramatískum blæ, eftirvænting ríkti eftir ákvörðun forsetans og þjóðin horfði á hann gefa yfirlýsinguna í beinni útsendingu." Ólafur Teitur Guðnason, stjórnmálablaðamaður Viðskiptablaðsins og liðsmaður Guðmundar á Skjá einum var á öndverðum meiði við hina tvo fyrrnefndu í málinu en sammála um stærð málsins á árinu en bætir við: "Næststærsti atburðurinn var líklega hið ótrúlega litla fylgi sem forsetinn hlaut í kosningum í kjölfarið; það var einsdæmi fyrir sitjandi forseta." Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, þingfréttamaður sjónarpsins, bendir á annan flöt: "Fyrir blaðamann sem ekki er í Blaðamannafélaginu, eins og ég, var líka ansi sérstakt að fylgjast með formanni þess félags beita sér opinberlega gegn þessari fyrirhuguðu lagasetningu." Flestir nefna átök þegar spurt er um hvað hafi einkennt árið. Ólafur Teitur: "Margir fréttamenn gáfu ekkert eftir í átökum við ríkisstjórnina, lögðu banana að dyrum Alþingishússins og einn frægasti fréttamaður landsins hvatti mótmælendur á Austurvelli til þess að "velta borðum valdníðinganna", eins og hann orðaði það." Pétur Gunnarsson, þaulreyndur stjórnmálablaðamaður sem nú starfar fyrir þingflokk Framsóknarflokksins segir að 2004 hafi verið eitthvert mesta átakaár í pólitíkinni frá áttunda áratugnum. Um beitingu synjunarvaldsins segir hann: "Hún setti af stað stjórnskipunarlega krísu en veitti um leið tilefni og tækifæri til þess að vinna úr málinu með því að halda áfram að þróa stjórnarskrá landsins. "
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira