Vill utandagskrárumræðu um PISA-könnun 8. desember 2004 00:01
Niðurstöður PISA-könnunar um námsárangur íslenskra grunnskólabarna kalla á að það verði lyft grettistaki í skólamálum Íslendinga til að koma þjóðinni í fremstu röð í menntamálum. Þetta er mat Björgvins G. Sigurðssonar, fulltrúa Samfylkingarinnar í menntamálanefnd Alþingis. Björgvin hefur óskað eftir utandagskrárumræðu um málið á þinginu. Björgvin segir að þó að sumt í PISA- könnuninni sé jákvætt og horfi til framfara þá sé hún samt sem áður staðfesting á óviðunandi stöðu skólamála. Hið fyrsta þurfi að fara í gang vinna við að greina ástæður þess að árangurinn er ekki betri en raun ber vitni. Sérstaklega þurfi að kanna umhverfi og aðstæður finnska grunnskólans sem samkvæmt könnuninni skarar fram úr á öllum sviðum. Þá telur Björgvin að rannsaka þurfi sérstaklega með samanburði við önnur lönd, fyrirkomulag og inntak kennaramenntunar, námskrár skólanna og markmiðssetningar grunnskólanna almennt. Björgvin segir ljóst að grunnskólarnir hafi tekið framförum frá því að sveitarfélögin tóku við rekstri þeirra og þau veitt til þeirra fjármagni og afli langt umfram það sem ríksvaldið gerði. "En miklu betur má ef duga skal enda markmiðið að vera í fremstu röð. Þá er slakur árangur drengja í stærfræði verulegt áhyggjuefni sem og óviðunandi árangur barnanna í lestrarkunnáttu. Það þarf að ná þverpólitískri þjóðarsátt um betri grunnskóla. Þar þurfa allir að taka höndum saman, ríki, sveitarfélög, menntasamfélagið, atvinnulífið og stjórnmálamenn. Ná saman um markmið, leiðir og aukið fjármagn til menntamála. Bæði frá ríkisvaldinu og atvinnulífinu," segir Björgvin G. Sigurðsson.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira