Samþykkt ráðherra fyrir bí 1. desember 2004 00:01
Samþykkt heilbrigðis- og félagsmálaráðherra á Norðurlöndum um áfengismál frá átjánda október er fokin út í veður og vind með hækkun áfengisskatts hér á landi en stórfelldri lækkun á sama skatti í hinum norrænu ríkjunum. Í þeirri samþykkt fólst að beita hækkunum á áfengisskatti til að draga úr áfengisneyslu. Við það tækifæri sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra að þar sem skatturinn væri svo hár hér á landi þyrfti ekki að hækka hann hér - það væri þá fyrst og fremst á hinum Norðurlöndunum. Þetta er nú að engu orðið og berast nú mótmæli við hækkuninni úr ýmsum áttum. Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna, harmar þá ákvörðun stjórnvalda að hækka áfengisskatt sem fyrir hafi verið sá hæsti í heiminum. Hann hafi síðast verið hækkaður um 15% árið 2002 og nú um 7%. Þetta gerist á sama tíma og Danir hafi verið að lækka áfengisskatt um 45%, Finnar um 33% og Svíar stefni að 30-40% lækkun. Heimdallur segir það skjóta skökku við að í kjölfar fyrirhugðra tekjuskattslækkunar grípi stjórnvöld til þess ráðs að hækka neysluskatta í stað sparnaðar í ríkisrekstrinum. Neysluskattur á borð við þennan byggist á forsjárhyggju ríkisins gagnvart þegnum sínum og skerði frelsi þeirra til sjálfstæðra ákvarðana. Þá telja Samtök ferðaþjónustunnar hækkunina ganga þvert á þá yfirlýstu stefnu stjórnvalda að ferðaþjónustunni á Íslandi verði sköpuð sambærileg rekstrarskilyrði og gilda í samkeppnislöndunum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira