Í nám á fimmtugsaldri 9. nóvember 2004 00:01
Þuríður Sigurðardóttir er flestum kunn sem söngkona, en í símaskránni er hún titluð myndlistarkona. Ástæðan er að hún dreif sig í myndlistarnám á fimmtugsaldri og útskrifaðist með BA-gráðu frá Listaháskóla Reykjavíkur árið 2001. Þuríði hafði alltaf langað að læra myndlist en aðstæður höguðu því þannig að hún lagði drauminn á hilluna og reiknaði eiginlega ekki með að hann rættist. "Ég var mikið að teikna og mála sem barn og var dugleg að sækja myndlistarsýningar á boðsmiðunum hans pabba," segir hún hlæjandi. "Það var svo ekki fyrr en ég var orðin harðfullorðin að ég tók stúdentspróf og sótti svo um í Myndlistar- og handíðaskólann. Þar var mér hafnað í fyrstu atrennu. Það var svo fyrir hvatningu kennarans míns í FB að ég hringdi til að fá skýringar. Þá var mér sagt að mappan mín væri glæsileg, sem var gott fyrir egóið. Mér var jafnframt sagt að þegar tveir umsækjendur væru metnir að jöfnu færi sá inn sem væri yngri. Þá hrundi heimurinn," segir Þuríður, sem hélt að þar með væri hún úr leik. Henni var líka sagt að hún væri fyrst á biðlista en trúði því svona rétt mátulega. Hið stórkostlega gerðist samt, einn umsækjenda datt út og Þuríður komst inn. "Mér leið ekki eins og aldursforseta þó að ég væri vissulega eldri en samnemendurnir. Flestir gátu verið börnin mín, en þeir höfðu lag á að láta mig ekki finna fyrir því. Við erum meira að segja nokkur að vinna saman enn. Svo getur maður alveg lært þótt maður sé af barnsaldri." Þuríður er ekki hætt að syngja, en ákvað að helga sig náminu meðan á því stóð. "Ég mæli eindregið með því að fólk láti svona drauma rætast, það er svo endurnýjandi og hollt að vera með ungu fólki og fara inn á brautir sem maður þekkir ekki. Ég er afskaplega þakklát fyrir þetta nám og að hafa fengið að upplifa breytingarnar á þessum tíma þegar Myndlista- og handíðaskólinn breyttist í að vera Listaháskóli Íslands með nýjum áherslum og ferskum vindum. Og ef breytingaskeið getur verið jákvætt þá var þetta jákvætt breytingaskeið í orðsins fyllstu merkingu," segir Þuríður og hlær dátt.
Nám Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Fleiri fréttir Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira