Ákvörðuninni ekki breytt 24. ágúst 2004 00:01
Stjórn Kjördæmissambands framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi krefst þess að formaður og þingflokkur Framsóknarflokksins falli frá þeirri ákvörðun að láta Siv Friðleifsdóttur hætta í ríkisstjórn og tryggi henni áframhaldandi ráðherraembætti eftir að flokkurinn tekur við forsætisráðuneytinu 15. september. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ákvörðun þingflokksins verði ekki breytt. Stjórn Kjördæmasambands Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi samþykkti harðorða ályktun gegn flokksforystunni á fundi sínum gærkvöld. Þar er bent á að Suðvesturkjördæmi sé fjölmennasta kjördæmi landsins og að þar hafi flokkurinn fengið fimmtung atkvæða sinna í síðustu kosningum, eða 6.387 af 32.484 atkvæðum alls. Siv hafi því flest atkvæði allra þingmanna Framsóknarflokksins á bak við sig og skjóti skökku við að hún skuli vera látin víkja. Auk þess er bent á að Siv hafi langa þingreynslu, sé af nýrri kynslóð í flokknum, og hafi aukinheldur hlotið afgerandi traust flokksmanna í embætti ritara flokksins, eina af þremur æðstu valdastöðum hans. Af þeim sökum sé óverjandi að vísa henni úr ríikisstjórn, eins og þingflokkurinn samþykkti í síðustu viku, og er þess krafist að sú ákvörðun verði endurskoðuð. Ekki náðist í Halldór Ásgrímsson, formann flokksins, fyrir hádegi en í Morgunblaðinu í dag er haft eftir honum að ekki komi til greina að endurskoða ákvörðun þingflokksins frá liðinni viku. Hún hafi verið tekin með formlegum hætti, í samræmi við lög flokksins og með yfirgnæfandi meirihluta, og því kæmi ekki annað til greina en að standa fast við hana.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira