Ekki skólagjöld í grunnnám 13. október 2005 14:24
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra er á þeirri skoðun að samfélagið eigi að mestu eða öllu leyti að standa straum af kostnaði nemenda við grunnnám í háskólum. Hún telur hins vegar að hið sama eigi ekki við um framhaldsnám, þ.e. mastersnám og doktorsnám, og því þurfi að skoða kosti þess að nemendur standi meiri straum af kostnaði við það. Þorgerður Katrín sér fleiri kosti en galla við slíkt fyrirkomulag. "Fyrir mína parta þá geld ég frekar varhug við því að setja skólagjöld á grunnnám. Aftur á móti sé ég fleiri kosti en galla á því að það verði hugsað um það í masters- og doktorsnámi," segir Þorgerður Katrín. Hún segir að mikil menntasókn á síðustu árum hafi gert það að verkum að grunnnám í háskólum sé orðið mun algengara en áður. "Ég held að það sé ekkert óeðlilegt að samfélagið standi undir því námi að mestu eða öllu leyti. En ég held að við verðum að taka málefni framhaldsnámsins til frekari athugunar. Þetta vonast ég til að gera á grundvelli faglegrar umræðu en ekki öfgafullrar og vonandi að við getum tekið hana með háskólasamfélaginu," segir Þorgerður Katrín. Að sögn Þorgerðar Katrínar hefur Samfylkingin lagt áherslu á að koma eigi upp skólagjöldum í háskólanámi og því leggur hún áherslu á öfgalausa og málefnalega umræðu um málið. "Ég held að við verðum að sjá hvað Háskólinn vill í þessum efnum en það sem ég hef fyrst og fremst viljað leggja áherslu á er að fá faglega umræðu um kosti og galla skólagjalda," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Sjá meira