Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Forstjóri Icelandia, sem rekur Flugrútuna, gagnrýnir að ríkið greiði rúma milljón króna á viku fyrir að taka við farþegum á nýrri stoppustöð við Keflavíkurflugvöll. Hann segir það auka samkeppni ríkisins við einkarekin ferðaþjónustufyrirtæki. Viðskipti innlent 7.10.2026 13:17
Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Tveir nýir veitingastaðir, Dom Brasserie & Bar og Lauf Bistro, hafa opnað á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju. Íslandshótel annast rekstur beggja staðanna, sem eru hluti af aukinni áherslu félagsins á veitingarekstur samhliða fjölgun hótela í rekstri þess, að því er fram kemur í tilkynningu. Viðskipti innlent 7.10.2026 13:04
Uggandi yfir afstöðu VR Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni. Viðskipti innlent 7.10.2026 09:41
Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA. Viðskipti innlent 5.10.2026 10:26
Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Stefán Þór Arnarsson hefur tekið til starfa hjá Fastus sem sviðsstjóri og staðgengill forstjóra. Viðskipti innlent 5.10.2026 10:20
Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Ásar, áður Síminn, og Samkeppniseftirlitið hafa hafið sáttaviðræður vegna kaupa fyrirtækisins á Opnum kerfum og Öryggismiðstöðvar Íslands eftir að Samkeppniseftirlitið taldi nauðsynlegt að hlutast til í kaupunum. Viðskipti innlent 4.10.2026 23:40
Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Ómar Þór Ómarsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Optise, segir langþráðan draum verða að veruleika í október þegar hann heldur út til Bandaríkjanna sem fulltrúi fyrsta íslenska fyrirtækisins til að taka þátt í Startup Battlefield, sprotakeppni tæknimiðilsins TechCrunch. Viðskipti innlent 3.10.2026 20:01
Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Lokað verður fyrir almennar bókanir í Hálendismiðstöðina í Kerlingarfjöllum yfir vetrarmánuðina en áfram opið fyrir hópabókanir. Rekstrarstjóri segir breytinguna vera hluta af því ferli að sjá hvað virki best fyrir staðinn sem verði mannaður í allan vetur og því starfandi allt árið um kring. Viðskipti innlent 3.10.2026 16:53
Klíníkin sótti 300 milljónir króna Klíníkin Ármúla lauk í september 300 milljóna króna hlutafjáraukningu og náðist þar með markmið aukningarinnar að fullu. Auk þess seldi félagið eigin hluti fyrir um 23 milljónir króna til 13 starfsmanna, sem eignuðust samtals tveggja prósenta hlut í félaginu. Fyrr á árinu bættust jafnframt níu starfandi læknar í hluthafahópinn. Viðskipti innlent 2.10.2026 15:01
181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Alls bárust Vinnumálastofnun sex tilkynningar um hópuppsagnir í nýliðnum september, þar sem 181 starfsmanni var sagt upp störfum. Viðskipti innlent 2.10.2026 13:04
Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Skiptum er lokið á þrotabúi Veislunnar ehf., sem rak samnefnda veisluþjónustu á Seltjarnarnesi um árabil. Ekki ein einasta króna fékkst upp í kröfur, sem námu tæpum 216 milljónum króna. Ekki er langt síðan greint var frá mörg hundruð milljóna króna gjaldþrotum félaga í eigu Helga Magnúsar Hermannssonar, sem einnig átti Veisluna. Viðskipti innlent 2.10.2026 11:37
Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Seljandi er félag í eigu Vilhjálms Þórs Matthíassonar. Heildarvirði Malbikstöðvarinnar í viðskiptunum er 5.080 milljónir króna. Viðskipti innlent 2.10.2026 08:08
Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Tuttugu starfsmönnum í fiskvinnslu Premium of Iceland í Reykjanesbæ hefur verið sagt upp. Félagið segir óvissu um að kenna vegna aðgerða heilbrigðisnefndar Suðurnesja, 38 hafi starfað hjá fiskvinnslunni í upphafi árs en þeim hafi fækkað jafnt og þétt. Félagið segir málið varða fleiri fyrirtæki og segir hundruð starfa undir. Viðskipti innlent 2.10.2026 07:58
Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Hampiðjan hefur greitt viðbótarkaupgreiðslu til seljenda indverska kaðlaframleiðandans Kohinoor Ropes upp á 4,14 milljónir evra, eða um 569 milljónir króna, þar sem að reksturinn fór fram úr væntingum. Viðskipti innlent 2.10.2026 00:05
„Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Skyndileg starfslok Harðar Arnarsonar sem forstjóra Landsvirkjunar koma í kjölfar ágreinings milli hans og stjórnar Landsvirkjunar. Stjórnarformaðurinn segir forstjórann og stjórnina ekki ávallt hafa verið sammála um allt en hún þakkar Herði fyrir glæsilegan sautján ára feril hjá félaginu. Viðskipti innlent 1.10.2026 21:31
Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, mun taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. nóvember, þar til nýr forstjóri verður ráðinn. Viðskipti innlent 1.10.2026 14:44
Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Ársfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram í dag, fimmtudaginn 1. október, kl. 15–17 í Silfurbergi í Hörpu undir yfirskriftinni „Sækjum fram.“ Fylgjast má með fundinum í beinni útsendingu á Vísi. Viðskipti innlent 1.10.2026 14:02
Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Ísland er í 26. sæti landa í heiminum í nýútgefinni nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar, WIPO, og lækkar um tvö sæti frá því í fyrra. Ísland var í 17. sæti vísitölunnar árið 2021 og hefur fallið um níu sæti á fimm árum. Viðskipti innlent 1.10.2026 13:05
Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar hefur óvænt boðað til starfsmannafundar eftir hádegið í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hefur Hörður velt stöðu sinni sem forstjóri fyrir sér undanfarið og mun það vera tilefni fundarins. Vísir hefur ekki fengið staðfest hvort Hörður ætli að láta af störfum hjá félaginu en hann mætti á fund í stjórnarráðinu um eittleytið í dag. Viðskipti innlent 1.10.2026 12:07
Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Allar fjórar stærstu sælgætisgerðir landsins skiluðu hagnaði 2025. Aðeins þær stærstu, Nói Síríus og Góa-Linda, greiða hluthöfum arð þetta árið. Viðskipti innlent 1.10.2026 08:01
Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Skatturinn stefnir að því að opna fyrir umsóknir fljótlega um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána. Samkvæmt svörum frá embættinu er enn unnið að uppfærslum á kerfum sem eiga að halda utan um umsóknir vegna ráðstöfunarinnar. Viðskipti innlent 1.10.2026 06:36
Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Magnús G. Erlendsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG. Hann hóf störf hjá ráðgjafarsviði KPMG árið 2005 og varð hluthafi árið 2014 en tekur hann við af Svanbirni Thoroddsen sem lætur nú af störfum hjá KPMG eftir sautján ára feril hjá félaginu Viðskipti innlent 30.9.2026 17:19
Spá óbreyttum vöxtum Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga hefur ekki mælst meiri í tvö ár. Viðskipti innlent 30.9.2026 14:56
Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Hlutabréfavelta í Kauphöllinni var sú minnsta í sex ár í ágúst og nam 29 milljörðum króna. Í ágúst 2020, á fyrsta ári faraldursins, var hún 28,8 milljarðar. Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir háa vexti helstu skýringuna á lítilli veltu nú. Viðskipti innlent 30.9.2026 14:02