Starfslok Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun

Fréttamynd

Hafi ekki fundað form­lega án Harðar heldur snætt há­degis­mat

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir enga formlega stjórnarfundi Landsvirkjunar hafa verið haldna án Harðar Arnarsonar fyrrverandi forstjóra. Hann segir lögin ekki banna stjórnarmönnum að hittast sem hafi borðað saman hádegismat fyrir fundina. Ágreiningurinn snúist um form en ekki stefnu.

Innlent
Fréttamynd

Frá­farandi for­stjóri Lands­virkjunar opnar sig um starfs­lokin

Það vakti mikla athygli þegar Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, tilkynnti starfslok sín en hann gaf engin skýr svör við því hvers vegna hann hafi ákveðið að hætta fyrr. Nú hefur hann sagt ágreining sem olli starfslokunum meðal annars tilkominn vegna skorts á umboði og trausti í sinn garð en hann gangi mjög sáttur frá borði og fyrirtækið sé á góðum stað.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Leit að eftir­manni Harðar hefði hafist í haust eða vetur

Leit að eftirmanni Harðar Arnarsonar í starfi forstjóra Landsvirkjunar hefði hafist í haust eða vetur, að sögn Brynju Baldursdóttur stjórnarformanns. Hún segir næsta forstjóra þurfa að vera öflugan leiðtoga með reynslu af stjórnun og stórum verkefnum.

Innlent
Fréttamynd

„Hlutir sem við vorum ekki sam­mála um“

Skyndileg starfslok Harðar Arnarsonar sem forstjóra Landsvirkjunar koma í kjölfar ágreinings milli hans og stjórnar Landsvirkjunar. Stjórnarformaðurinn segir forstjórann og stjórnina ekki ávallt hafa verið sammála um allt en hún þakkar Herði fyrir glæsilegan sautján ára feril hjá félaginu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Takk Hörður

Hörður Arnarson hefur látið af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir sautján ár við stýrið. Hann tók við hlutverkinu í miðri efnahagskreppu 2009 þegar Landsvirkjun var gríðarlega skuldsett, öll lán fyrirtækisins með ríkisábyrgð og arðgreiðslur litlar.

Skoðun
Fréttamynd

Hörður hættir sem for­stjóri Lands­virkjunar

Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, mun taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. nóvember, þar til nýr forstjóri verður ráðinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnar­ráðið

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar hefur óvænt boðað til starfsmannafundar eftir hádegið í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hefur Hörður velt stöðu sinni sem forstjóri fyrir sér undanfarið og mun það vera tilefni fundarins. Vísir hefur ekki fengið staðfest hvort Hörður ætli að láta af störfum hjá félaginu en hann mætti á fund í stjórnarráðinu um eittleytið í dag.

Viðskipti innlent