Fréttamaður

Magnús Jochum Pálsson

Magnús Jochum er umsjónarmaður Lífsins á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Safna fjár­magni með múrmeldýrum á OnlyFans

Hópur vísindamanna við UCLA-háskóla ákvað að stofna Onlyfans-síðu til að safna fjármagni fyrir rannsóknir í kjölfar mikils niðurskurðar til vísindastarfs í Bandaríkjunum. Á síðunni er ekki að finna myndefni af mannfólki heldur múrmeldýrum.

Gurrý komin aftur á markaðinn

Einkaþjálfarinn Guðríður Erla Torfadóttir, betur þekkt sem Gurrý, er einhleyp á ný eftir að slitnaði upp úr sambandi hennar og fiskútflytjandans Jóns Benediktssonar.

„Heimurinn er betur staddur með Höllu sem for­seta“

Breski auðkýfingurinn Richard Branson átti nýverið vinafund með sínum gamla samstarfsfélaga Höllu Tómasdóttur og rifjaði af því tilefni upp þegar hún var forstjóri The B Team og fór í mánaðarleyfi til að fara í forsetaframboð. Branson bjóst ekki við að hún myndi ná kjöri en segir Ísland betur statt með hana í embættinu.

Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf á­kveðin í að sigrast á meininu“

Tíu ár eru liðin síðan Hildur Björnsdóttir borgarstjóri greindist með eitlakrabbamein, aðeins sjö dögum eftir fæðingu dóttur sinnar. Krabbameinið hafi sýnt henni hvað tíminn sé naumur og verðmætur. Hún hafi valið að lifa lífinu til fulls síðasta áratuginn, framkvæma það sem hræði hana og leyfa draumum sínum að rætast.

Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason segist hættur að gigga fyrir aðra og muni héðan í frá einungis koma fram á sínum eigin tónleikum. Ekki sé um markaðstrix að ræða og hann vinni nú að því að afbóka sig á öll gigg næstu misseri. Patrik vakti athygli um helgina í partýi Patreks Jaime fyrir að bauna á fólk úr bransanum og lýsa því yfir að þjóðhátíðarlag Herra hnetusmjörs og Birgittu Haukdal væri rusl.

Edda Falak og Kristján Helgi selja í­búð í 101

Edda Falak Yamak, fyrrverandi hlaðvarpsstjórnandi, og Kristján Helgi Hafliðason, þjálfari hjá Mjölni, hafa sett íbúð sína að Holtsgötu 24 á sölu. Íbúðin er 58,6 fermetrar að stærð og ásett verð hennar 61,9 milljón króna.

Seyfried syrgir Finn sinn

Bandaríska leikkonan Amanda Seyfried syrgir náinn fjölskyldumeðlim eftir að hundurinn Finn, sem hafði fylgt henni síðustu sextán árin, drapst um helgina.

Gosling verður Skrattakollur

Leikarinn Ryan Gosling er nýjasta stjarnan sem gengur til liðs við kvikmyndaheim Marvel og mun fara með hlutverk mótorhjólaknapans Johnny Blaze, þekktur sem Ghost Rider eða Skrattakollur, í kvikmynd um kappann árið 2028.

Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“

Veðurguðirnir hafa strítt íbúum höfuðborgarsvæðisins undanfarið en leyfðu þeim loksins að fá smá sól um helgina. Stjörnurnar streymdu fáklæddar út undir beran himin, fengu sér svaladrykk og nutu blíðunnar.

Diddy í ein­angrun eftir slags­mál við sam­fanga

Athafnamaðurinn Sean „Diddy“ Combs hefur verið settur í einangrun eftir að hafa slegist við samfanga sinn í Fort Dix-fangelsi í Nýju Jersey. Diddy hafi ráðist á viðkomandi eftir að sá hafði dissað hann. Ekki liggur fyrir hvort handalögmálin muni hafa frekari afleiðingar en að óbreyttu mun Diddy losna úr fangelsi í febrúar 2028 vegna góðrar hegðunar.

Sjá meira