Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Guðrún Svava Egilsdóttir skellti sér á Þjóðhátíð í Eyjum og hélt þar skemmtilegt vídjóblogg sem hægt er að sjá í nýjasta þætti af Gugga fer á djammið. Þar kemur ýmislegt við sögu, þar á meðal skutlglaðar löggur, kampavínsskenkjandi bæjarstjóri og twerkandi Þjóðhátíðargestir. 11.8.2026 07:00
Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Nýjasta kvikmyndin um Köngulóarmannin, Spider-Man: Brand New Day, heldur áfram sigurgöngu sinni, hefur halað inn 1,6 milljarði dala og stefnir hraðbyri á að verða ein af aðsóknarmestu myndum sögunnar. Ódysseifur Christophers Nolan er sömuleiðis enn á siglingu, fór um helgina yfir milljarð dala-múrinn og er orðin aðsóknarmesta mynd leikstjórans frá upphafi. 10.8.2026 14:46
Ben Jones er látinn Ben Jones, leikari og fyrrverandi þingmaður Demókrata, er látinn, 84 ára að aldri. Jones var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Cooter Davenport í sjónvarpsþáttunum Dukes of Hazzard en var einnig þingmaður í fjögur ár í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. 10.8.2026 12:11
Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Áhættuleikkonan Arna Magnea Danks lenti í mótorhjólaslysi á sunnudaginn, fótbrotnaði illa og þarf að fara í tvær aðgerðir. Hún var á mótorhjólinu í Gleðigöngunni á laugardaginn og var á leið með það í bílskúr þegar hún lenti í slysi á Sæbrautinni. 10.8.2026 11:01
Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fregnir bárust í vikunni af skilnaði Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorritar Moussaieff og rifjaðist þá upp þegar Davíð heitinn Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, gerði athugasemdir við hjónavígslu þeirra í bréfi sumarið 2003. Davíð taldi ágalla á hjónabandinu því gögn vantaði um skilnað Dorritar við fyrrverandi eiginmann hennar. Lögmaður Ólafs taldi Davíð vilja gera hjónin að athlægi og sagnfræðingurinn Guðjón Friðriksson sagði Davíð vega að heiðri Dorritar. Lektor í stjórnsýslurétti taldi Davíð ekki endilega hafa farið út fyrir verksvið sitt. 9.8.2026 10:02
Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Tom Holland og Zendaya giftu sig fyrr á árinu í lágstemmdri leynilegri athöfn og héldu svo annað brúðkaup með stórri veislu á sveitasetrinu Beaverbrook í Surrey í vikunni. Um 250 gestir voru í veislunni sem kostaði víst hálfa milljón sterlingspunda (jafnvirði um 83 milljóna króna) og var strangt símabann á staðnum. 7.8.2026 13:52
Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Kvikmyndaverið Lionsgate greinir frá því að vinna að framhaldsmynd um popparann Michael Jackson sé hafin. Tökur eigi að hefjast á seinni hluta þessa árs eða á fyrri hluta 2027 og kvikmyndin komi út ári síðar. Ævisögumyndin Michael kom út fyrr á árinu, fékk misjafna dóma hjá gagnrýnendum en skilaði milljarði Bandaríkjadala í kassann. 7.8.2026 12:44
Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Söngvamyndin Hvar er draumurinn? byggir á lögum Sálarinnar hans Jóns míns, er nostalgísk sumarsaga um fyrstu ástina og það að fullorðnast og kemur í bíóhús í byrjun september. Engir styrkir fengust í verkefnið sem er drifið áfram af ungu og metnaðarfullu kvikmyndagerðarfólki. 7.8.2026 11:01
Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Hjónin Hrafnhildur Helga Össurardóttir og Árni Hjaltason hafa sett 162 fermetra einbýlishús sitt að Lokastíg á sölu. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum og er ásett verð 172,9 milljónir króna. 6.8.2026 16:58
„Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Móðir einhverfs drengs fékk sig fullsadda af því að glíma við úrræðaleysi í kerfinu og stofnaði því Þorláksskóla, grunnskóla fyrir börn með einhverfu, sem opnar dyr sínar í haust. Hún muni aldrei treysta kerfinu fyrir syni sínum og ætlar að sjá til þess að hann fái alla þá hjálp sem hann þurfi og verði sigurvegari í lífinu. 6.8.2026 15:13