Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Itamar Ben-Gvir, þjóðaröryggismálaráðherra Ísrael, hefur verið harðlega gagnrýndur, bæði erlendis og heima fyrir, eftir að hann deildi myndskeiði sem sýnir hann lítilsvirða aðgerðasinna sem voru handteknir þegar þeir reyndu að komast til Gasa. 21.5.2026 10:15
Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Kaupsamningum fjölgaði milli mánaða í mars en voru færri en á sama tíma í fyrra. Fasteignasalar segja markaðinn ennþá kaupendamarkað og þá er spáð framhaldandi raunverðslækkunum á næsta ári. 21.5.2026 08:14
Trump segist munu ræða við forseta Taívan Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að hann hefði í hyggju að ræða við Lai Ching-te, forseta Taívan. „Ég mun tala við hann,“ sagði forsetinn. „Ég tala við alla... Við munum vinna í þessu; Taívan-vandamálinu.“ 21.5.2026 07:20
Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Xi Jinping, forseti Kína, segir hættu á því að alþjóðasamfélagið fari aftur að lúta „frumskógarlögmálinu“. Samband Kínverja og Rússa sé hins vegar til þess gert að stuðla að stöðugleika. Vladimir Pútín Rússlandsforseti er staddur í opinberri heimsókn í Kína. 20.5.2026 12:43
Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísrael hugðust koma fyrrverandi forseta Íran, Mahmoud Ahmadinejad, aftur til valda þegar þeir hófu árásir á landið. Ísraelsmenn lögðu á ráðin um árás á heimili Ahmadinejad í Tehran, þar sem hann sætti stofufangelsi, til að frelsa forsetann fyrrverandi. Ahmadinejad, sem særðist í árásinni, ku hafa vitað af áætluninni en snúist hugur þegar hann var frjáls. Ekki er vitað hvar hann er niðurkominn. 20.5.2026 10:23
„Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Sérfræðingar segja stjórnvöld á Bretlandseyjum munu þurfa að koma upp loftkælingu á öllum umönnunarheimilum og sjúkrahúsum á næstu tíu árum og í skólum á næstu 25 árum. Þeir segja hlýnun muni leiða til þess að úrræði á borð við að opna glugga, draga fyrir og rækta tré til að búa til skugga ekki lengur munu duga til. 20.5.2026 09:10
Trump tókst að fella Massie Thomas Massie, fulltrúadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, beið ósigur í forvali flokksins í Kentucky í gær. Massie, sem hefur setið á þingi frá 2012, tapaði fyrir Ed Gallrein, sem var valinn af Donald Trump Bandaríkjaforseta til að skora Massie á hólm. Úrslitin þykja til marks um það að Trump hafi enn tangarhald á Repúblikanaflokknum, þrátt fyrir vaxandi óvinsældir. 20.5.2026 07:05
Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Almennum borgurum er heimilt að taka upp myndskeið af aðgerðum lögreglu á almannafæri. Þá hefur lögregla ekki heimild til að skipa einstaklingum að eyða upptökum, líkt og virðist hafa átt sér stað í Keflavík á mánudagsmorgun. 20.5.2026 06:31
Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Lögregluyfirvöld í Katalóníu hafa handtekið Jonathan Andic, son stofnanda tískuverslanakeðjunnar Mango, í tengslum við dauða föður hans. Isak Andic lést í desember árið 2024, eftir að hann féll niður í gil í Montserrat á göngu ásamt syni sínum. 19.5.2026 11:22
Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Sérfræðingar segja Evrópusambandið myndu taka Bretum með opnum örmum ef þeir vildu ganga aftur í sambandið en að þeir myndu hins vegar ekki fá jafn hagfelldan samning og þeir hefðu verið á. Tími sérstakra undanþága til handa Bretum væri liðinn. 19.5.2026 10:08