Unnið að uppfærslu umferðarljósa Á næstu dögum verður unnið að uppfærslu á umferðarljósastýringu á gatnamótum Miklubrautar og Klambratúns annars vegar og Miklubraut og Stakkahlíðar hins vegar. Slökkt verður á ljósunum hluta miðvikudagsins og fimmtudagsins næstkomandi. 14.9.2026 17:41
Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Enn er afar mjótt á munum milli hægri og vinstri blokkanna í sænsku þingkosningunum nú þegar búið er að telja 91 prósent atkvæða. Fylking stjórnarandstöðunnar leiðir með örlitlum meirihluta en aðeins eitt þingsæti skilur að fylkingarnar tvær sem berjast um stjórnartaumana. 14.9.2026 00:13
Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Stjórn Kviku banka hefur ráðið Jón Birgir Jónsson sem forstjóra bankans. Hann mun taka við starfinu af Ármanni Þorvaldssyni þann 1. desember næstkomandi. 13.9.2026 22:49
„Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Tónlistarmaðurinn og íslenskufræðingurinn Bragi Valdimar Skúlason gagnrýnir metnaðarleysi við hönnun límmiða frá lögreglunni sem dreift hafi verið til grunnskólabarna. Fyrir löngu sé búið að „færa metnaðarstikuna undir slormörk þegar kemur að hönnun og prófarkalestri.“ 13.9.2026 22:07
Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Þriðjungur Reykvíkinga sem aka til vinnu vill skipta um ferðamáta og til að mynda nýta sér almenningssamgöngur og hjólreiðar samkvæmt niðurstöðum úr rannsóknarverkefni Reykjavíkurborgar. Að auki kemur þar fram að yfir 90 prósent svarenda flokki reglulega úrgang en flokkunarvenjur ráðist fyrst og fremst af aðgengi að innviðum og þjónustu. 13.9.2026 21:13
Munurinn minnkar í nýrri spá Forskot stjórnarandstöðunnar minnkar samkvæmt nýrri spá SVT í Svíþjóð um úrslit þingkosninga þar í landi. Aðeins 0,2 prósentustig skilja hægri og vinstri blokkina að. 13.9.2026 20:23
Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám Samkvæmt útgönguspám SVT og TV4 í Svíþjóð er fylking Magdalenu Andersson og stjórnarandstöðunnar með naumt forskot á fylkingu núverandi forsætisráðherra, Ulf Kristersson. Svíþjóðardemókratar tapa fylgi miðað við skoðanakannanir síðustu daga. 13.9.2026 18:48
Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um innbrot og þjófnað í fyrirtæki í hverfi 101 í Reykjavík. Gerandi er enn ókunnur. 13.9.2026 17:44
Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Georg prins, elsti sonur Vilhjálms Bretaprins og Katrínar prinsessu, hóf í dag skólagöngu sína í Eton-skólanum, einum dýrasta heimavistarskóla Bretlands. Hann fetar því í fótspor föður síns og frænda, Harrys hertoga af Sussex, auk margra fyrrverandi forsætisráðherra og rithöfunda. 8.9.2026 21:51
Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Rithöfundurinn og áhrifavaldurinn Ashley St. Clair segist hafa neitað að skrifa undir fjörutíu milljóna dala þagnarsamning við auðjöfurinn Elon Musk, barnsföður sinn. Í dag var frumsýnd heimildarmynd um ævi og feril Musks, auðugasta manns heims. 8.9.2026 20:42