Varafréttastjóri

Árni Sæberg

Árni er varafréttastjóri á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hús­næðis­lán séu síðasta vígið en það muni falla

Sparisjóðurinn Indó hefur nú bætt langtímalánum við vöruframboð sitt en hingað til hefur aðeins verið boðið upp á yfirdráttarlán. Framkvæmdastjóri Indó segir að langtímamarkmiðið sé að bjóða upp á húsnæðislán og gera fólki þannig kleift að kveðja stóru bankana og stunda öll sín bankaviðskipti við Indó.

Klóraði lög­reglu­mann og beit annan

Karlmaður hefur verið dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að klóra lögreglumann og bíta annan fyrir framan verslun í Kópavogi árið 2024.

Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco

Friðbert Þór Ólafsson, Sigvaldi Fannar Jónsson og Þorbjörg Ásta Leifsdóttir hafa bæst við í eigendahóp BBA//Fjeldco, en þau hafa öll starfað hjá félaginu um árabil.

Sögðu mjólkur­fernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu

Fulltrúa samtakanna SJÁ, sem berjast fyrir því að þjóðin greiði atkvæði með því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, varð á í messunni í myndskeiði á Instagram þegar hann sagði mjólkurlítrann á Íslandi kosta 380 krónur. Hið rétta er að í Bónus kostar hann 234 krónur. Myndskeiðinu hefur nú verið eytt.

Hætt að taka við reiðu­fé vegna innbrotahrinunnnar

Eigendur veitingastaðanna Ramen Momo hafa ákveðið að hætta að taka við reiðufé vegna innbrotahrinu sem nú gengur yfir Reykjavík. Brotist var inn í svokallað preppeldhús veitingastaðanna í nótt og verðmætum var stolið. Þar voru þó engir peningar geymdir.

Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæ­braut

Forstöðumaður Gerðarsafns segist hafa fengið þau svör að forsvarsmenn safnsins verði hafðir með í ráðum vegna niðurrifs iðnaðarbyggingar að Dugguvogi 42 í Reykjavík. Flennistór lágmynd eftir Gerði Helgadóttur prýðir vegg hússins sem snýr að Sæbraut.

„Svimandi“ bóta­kröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri

Verjandi Sindra Snæs Birgissonar, sem var ákærður fyrir skipulagningu hryðjuverka ásamt Ísidóri Nathanssyni, segir þá eiga „svimandi“ bótakröfur á íslenska ríkið vegna aðfarar þess að þeim. Líf þeirra hafi verið í kyrrstöðu frá því að þeir voru handteknir fyrir rétt tæpum fjórum árum.

Sjá meira