Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Leeds sótti 0-1 sigur gegn Nottingham Forest í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Anton Stach skoraði sigurmarkið beint úr aukaspyrnu undir lok leiks. 22.8.2026 15:55
Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Stefán Teitur Þórðarson skoraði tvö mörk fyrir Hannover 96 í þægilegum 1-9 sigri gegn SV Hemelingen í fyrstu umferð þýska bikarsins. 22.8.2026 15:26
Norris náði ráspólnum aftur Ríkjandi meistarinn Lando Norris hjá McLaren er ekki tilbúinn að játa sig sigraðan í baráttunni um heimsmeistaratitilinn og tryggði sér fremstu stöðu í Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í Hollandi á morgun. 22.8.2026 15:11
Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Íslendingaliðið Blomberg-Lippe er meistari meistaranna í þýska handboltanum. 22-22 jafntefli varð niðurstaða meistaraleiksins en 26-24 sigur vannst eftir vítakeppni gegn Borussia Dortmund. 22.8.2026 14:47
Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Gianni Infantino, umdeildur forseti FIFA, var beðinn um að mæta ekki á fótboltamót ungmenna sem fer fram í Lýðveldi Dóminíkana um helgina. Óttast var að viðvera hans myndi draga neikvæða athygli að mótinu. 22.8.2026 14:30
„Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Alan Shearer segir lið Manchester United hafa litið út fyrir að vera ekki í leikformi í 2-0 tapi gegn Hull City í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. 22.8.2026 14:04
Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Zolani Tete, hnefaleikamaður sem varð heimsmeistari tvisvar, er látinn eftir skotárás sem átti sér stað fyrir utan heimili hans í Suður-Afríku. 22.8.2026 13:01
Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Þrír leikir fóru fram í Bestu deild kvenna í gær og óvænt úrslit komu upp úr þeim öllum. Mörkin úr leikjunum má sjá hér fyrir neðan. 22.8.2026 12:01
Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Tímabilið hefst stórkostlega hjá nýliðum Hull, með 2-0 sigri gegn Manchester United í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Semi Ajayi og Nobel Mendy skoruðu mörkin. 22.8.2026 11:02
Russell vann sprettinn í þriðja sinn George Russell varð fyrstur í sprettkeppni Formúlu 1 kappakstursins í Hollandi. Hann var fremstur alla 24 hringina og kom í mark 1,3 sekúndu á undan Charles Leclerc. 22.8.2026 10:46