Fréttamaður

Agnar Már Másson

Agnar Már er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Í­trekað hjólað á móti um­ferð

Fólk á reðihjólum og rafhlaupahjólum hjólar ítrekað á móti umferð við Hverfisgötu í Reykjavík, en ekki virðast allir átta sig á því þar sé einstefna sitt hvoru megin við götuna. Formaður Landsambands hjólreiðamanna segir að bæta þurfi vegmerkingar við götuna. Einstefnuhjólastígum á að fara fjölgandi í borginni á næstu árum, að sögn Reykjavíkurborgar.

Danir auka víg­búnað í Fær­eyjum

Dönsk stjórnvöld ætla að auka viðveru hersins í Færeyjum. Danski varnarmálaráðherrann Jeppe Bruus og færeyskur strafsbróðir hans, Bárður á Steig Nielsen, sem fer fyrir utanríkis- og sjávarútvegsmálum í Færeyjum, hafa gert samkomuag um þetta.

Þyrlur slökkvi­liðs skullu saman í miðju lofti

Tvær slökkviliðsþyrlur skullu saman í loftinu í Grikklandi í dag. Viðbragðsaðilar voru við slökkvistörf við skógarelda nærri Porto Germeno, vestur af Aþenu. Mikill vindur og hiti hefur sett strik í reikninginn við slökkvistörf.

„Við getum ekki kvartað undan veðrinu“

Kærleikur og stemning eru í loftinu í Neskaupsstað um þessar mundir enda stendur hátíðin Neistaflug yfir nú um verslunarmannahelgina. Ræst hefur úr spám og nú er sól og blíða í bænum.

Hand­tóku níu og nutu lið­sinnis sér­sveitar vegna staks egg­vopns

Níu voru handteknir og einn vistaður í fangageymslu vegna vopnalagabrots á tónleikasvæði á Akureyrarvelli í gærkvöld. Fjórir voru handteknir í bænum vegna minniháttar fíkniefnalagabrots og einn þeirra vistaður í fangageymslu. Einnig var tilkynnt um stórfellda líkamsárás þar sem einstaklingur endaði með beinbrot í andliti. 

Sjá meira