Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar 31. október 2026 09:30 Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga formenn samtakanna fyrr og nú niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar. Þetta er þriðja greinin í ritröðinni. Menntun sem mannréttindi Nú í október fagna Landssamtökin Þroskahjálp 50 ára afmæli sínu. Á þessari hálfu öld hafa orðið róttækar breytingar á menntun fatlaðs fólks á Íslandi, frá því að mjög mörgum var neitað um flest og jafnvel öll tækifæri til náms til þess sem nú er viðurkennt að menntun er mannréttindi allra. Þetta hefur þó alls ekki gerst af sjálfu sér. Þetta er árangurinn af áratugalangri réttindabaráttu fyrir því að fötluð börn og ungmenni njóti sömu tækifæra til náms, þátttöku og samfélagslegrar virkni og aðrir. Réttur og tækifæri fatlaðs fólks til menntunar hefur frá stofnun Þroskahjálpar verið eitt af helstu áherslumálum samtakanna, enda hafa þau ávallt litið á menntun sem grundvallarmannréttindi og forsendu raunverulegra tækifæra til virkrar þátttöku í samfélaginu. Þegar skólaganga var ekki sjálfsögð Í dag finnst flestum sjálfsagt að öll börn eigi rétt á að ganga í sinn heimaskóla, læra með jafnöldrum sínum og fá þann stuðning til þess sem þau þurfa. Fyrir aðeins nokkrum áratugum voru aðstæður fatlaðra barna og ungmenna allt aðrar. Fötluð börn voru mjög oft aðskilin frá jafnöldrum sínum á stofnunum eða í sérúrræðum og mjög mörgum þeirra stóð engin raunveruleg menntun til boða. Samfélagið leit almennt svo á að fötlun hlyti að takmarka og jafnvel útiloka möguleika fólks til náms og annarrar þátttöku í samfélaginu. Fötluð börn voru mjög oft og mjög mörg vistuð utan heimilis, meðal annars á Sólheimum í Grímsnesi, í Skálatúni í Mosfellssveit og á Kópavogshæli. Menntun þeirra var oft mjög lítil og takmörkuð vegna fordóma um að þau gætu lítið eða ekkert lært og hún var yfirleitt ekki hluti af hinu almenna skólakerfi. Mikilvægt framfaraspor var stigið árið 1961 þegar Höfðaskóli var stofnaður, sem fyrsti sérskóli landsins fyrir börn með þroskahömlun. Þá fengu í fyrsta sinn nemendur með þroskahömlun skipulegan aðgang að grunnskólamenntun innan menntakerfisins. Árið 1975 fluttist skólinn í nýtt húsnæði og fékk þá nafnið Öskjuhlíðarskóli. Skólinn varð leiðandi afl í þróun sérkennslu og stuðningsþjónustu fyrir fatlaða nemendur um áratugaskeið. Árið 1982 var Safamýrarskóli stofnaður fyrir nemendur með miklar og fjölþættar stuðningsþarfir. Árið 2011 voru Öskjuhlíðarskóli og Safamýrarskóli sameinaðir undir heitinu Klettaskóli. Þessir skólar gegndu mikilvægu hlutverki á sínum tíma og tryggðu mörgum fötluðum börnum aðgang að menntun þegar önnur úrræði voru fá eða engin. En á sama tíma endurspegluðu þeir þá hugmynd sem var ríkjandi mjög lengi, að fatlaðir nemendur ættu fyrst og fremst að sækja nám í aðskildum úrræðum. Skóli án aðgreiningar Mikilvæg tímamót urðu hvað varðar tækifæri fatlaðs fólks til náms árið 1994 þegar 92 ríki samþykktu Salamanca-yfirlýsingu UNESCO. Með henni var hugmyndafræði skóla án aðgreiningar viðurkennd sem mikilvægt markmið á alþjóðavettvangi. Yfirlýsingin byggðist á þeirri grundvallarhugmynd að almennir skólar ættu að vera fyrir öll börn og að menntakerfið bæri ábyrgð á því að tryggja þátttöku og nám allra nemenda, óháð fötlun, námsgetu eða félagslegum aðstæðum. Frá sjónarhóli Þroskahjálpar var þetta þó ekki aðeins menntastefna heldur gríðarlega mikilsvert mannréttindamál. Samtökin hafa alla tíð lagt mikla áherslu á að öll börn eigi rétt á því að vera hluti af sínu skólasamfélagi, ganga í sinn hverfisskóla, hafa þar með tækifæri til að eignast vini og kunningja í nærumhverfi sínu og taka virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Þroskahjálp hefur litið svo á og lítur svo á, að skóli án aðgreiningar sé nauðsynleg forsenda þess að íslenskt samfélag geti orðið samfélag án mismununar á grundvelli fötlunar. Um síðustu aldamót festi hugmyndafræði skóla án aðgreiningar sig í sessi í íslensku skólakerfi. Innleiðingin reyndist þó víða krefjandi. Mismunandi skilningur var og er lagður í hugtakið, skortur var á skýrri leiðsögn um framkvæmd stefnunnar og of víða og of oft vantaði bæði nauðsynlegt eftirlit og mat á árangri. Rétturinn til náms í framhaldsskóla Á sama tíma og baráttan fyrir réttindum fatlaðra barna á grunnskólastigi skilaði árangri varð sífellt ljósara að einnig yrði að tryggja möguleika þeirra til áframhaldandi náms að loknum grunnskóla. Mikilvæg tímamót hvað það varðar urðu með lögum um framhaldsskóla nr. 80/1996. Með þeim var menntamálaráðherra veitt heimild til að stofna sérstakar deildir innan framhaldsskóla fyrir fatlaða nemendur. Sú lagasetning lagði grunn að skipulagðri uppbyggingu starfsbrauta í framhaldsskólum um land allt. Árið 2000 gaf menntamálaráðuneytið út námskrá fyrir starfsbrautir. Þar voru starfsbrautir skilgreindar sem námsleiðir fyrir nemendur með sértækar stuðningsþarfir. Markmið námsins voru meðal annars að efla sjálfstæði nemenda, félagslega þátttöku, starfsfærni og undirbúning fyrir atvinnulíf og sjálfstætt líf. Á næstu árum þróuðust starfsbrautir hratt og urðu aðgengilegar í framhaldsskólum um land allt. Með lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 var enn frekar áréttað að allir nemendur ættu rétt á námi við hæfi og viðeigandi stuðningi innan framhaldsskólakerfisins. Í dag eru starfsbrautir mikilvægur hluti af íslensku menntakerfi. Um er að ræða fjögurra ára, einstaklingsmiðaða námsleið fyrir fatlaða nemendur, þar sem áhersla er lögð á sjálfstæði, félagsfærni, þátttöku í samfélaginu, starfsþjálfun og undirbúning fyrir atvinnu og frekara nám. Starfstengd diplómanám Þróun menntunartækifæra fyrir fólk með þroskahömlun stöðvaðist, sem betur fer ekki við framhaldsskólastigið. Haustið 2007 hófst starfstengt diplómanám fyrir fólk með þroskahömlun við Háskóla Íslands. Námið var fyrsta samfellda háskólanámið á Íslandi sem sérstaklega var ætlað fólki með þroskahömlun og markaði því mikilvæg tímamót í íslenskri menntasögu. Námið byggist á hugmyndafræðinni sjálfsögðu og mikilvægu um menntun fyrir alla, inngildingu og mannréttindi. Markmið þess er að auka samfélagsþátttöku nemenda og undirbúa þá fyrir störf og virka þátttöku í samfélaginu. Nemendur stunda nám sitt með öðrum háskólanemum og taka þátt í inngildandi námsumhverfi þar sem lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám, starfsþjálfun og réttindavitund. Námið hefur verið þróað áfram frá stofnun þess og er í dag rekið innan menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Námið er án gráðu, sem þýðir að nemendur útskrifast ekki með háskólagráðu eða ECTS-einingar eins og í hefðbundnu háskólanámi. Að námi loknu fá þeir staðfestingu á þátttöku sinni, námskeiðum og starfsnámi. Þrátt fyrir mikilvægi námsins hefur, eins og mjög eðlilegt og sanngjarnt er, verið kallað eftir því að námið veiti viðurkenndar einingar líkt og annað háskólanám. Jafnframt hefur verið þrýst á um aukið fjármagn til að fleiri nemendur geti fengið aðgang að náminu og framboð sambærilegs náms á háskólastigi verði aukið. Þessar sjálfsögu réttlætiskröfur hafa þó ekki enn skilað tilætluðum árangri en ég er viss um að Þroskahjálp mun áfram þrýsta á að yfirvöld menntamála bregðist við og geri það í þessum málum sem rétt og skylt er. Menntun sem mannréttindi Mikilvægur áfangi náðist þegar Ísland fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að tryggja fötluðu fólki öll þau mannréttindi sem þar eru áréttuð. Samningurinn kveður skýrt á um rétt fatlaðs fólks til menntunar án aðgreiningar á öllum skólastigum. Árið 2025 var samningurinn síðan lögfestur hér á landi og þar með var stefnan um skóla án aðgreiningar lögfest enn rækilegar. Fyrir Landssamtökin Þroskahjálp markaði samningurinn staðfestingu á því sem samtökin höfðu haldið fram og barist fyrir í áratugi: Að tækifæri fatlaðs fólks til menntunar, til jafns við aðra, séu mannréttindi en ekki sérúrræði. Á rúmlega hálfri öld hefur íslenskt samfélag færst frá því að líta á fötlun sem tilefni til aðgreiningar yfir í að viðurkenna rétt fatlaðs fólks til þátttöku á öllum sviðum samfélagsins. Baráttan fyrir skóla án aðgreiningar er gríðarlega mikilvægur þáttur í þeirri vegferð til réttlætis, miklu betra samfélags, jafnréttis og margvíslegra annarra mannréttinda. Saga síðustu 50 ára sýnir að aukin tækifæri fatlaðra barna og ungmenna til menntunar hafa ekki gerst af sjálfu sér. Þau hafa orðið vegna skýrrar sýnar um jafnan rétt og þrautseigrar réttindabaráttu einstaklinga, fjölskyldna, Þroskahjálpar og annarra félaga og hagsmunasamtaka fatlaðs fólks. Við getum og verðum að gera mun betur Nú hefur þeim mikilvæga áfanga verið náð að yfirlýst stefna íslenskra stjórnvalda er að menntakerfið skuli vera án aðgreiningar og mæta skuli þörfum hvers og eins nemanda á hans eigin forsendum. En á sama tíma hafa heyrst sífellt háværari raddir um að stefna um skóla án aðgreiningar hafi mistekist og að einfaldast og réttast sé að hverfa frá þeirri stefnu. Mennta- og barnamálaráðherra hefur m.a.s. opinberlega sagt að skóli án aðgreiningar sé „barn síns tíma“ og að hún skilji ekki að hagsmunasamtök eins og Landssamtökin Þroskahjálp telji vera til bóta að blanda öllum saman alveg sama hver geta nemenda er til að takast á við krefjandi nám. Þroskahjálp varar mjög mikið við þeirri orðræðu að stefnan um skóla án aðgreiningar sé að einhverju leyti orsök þeirra vandamála sem skólakerfið stendur frammi fyrir. Ef framkvæmd stefnunnar um skóla án aðgreiningar hefur ekki verið nægilega góð, er lausnin að sjálfsögðu ekki að gefast upp á henni, heldur að skapa henni betri forsendur og bæta úr því sem þarf til að hún geti skilað þeim mikla ávinningi sem hún á að geta og getur gert til að skapa réttlátt samfélag fólks, án mismununar og aðgreiningar. Við eigum alls ekki og megum alls ekki tala um skóla án aðgreiningar sem vandamál. Við eigum að tala um hvernig við getum eflt skólakerfið þannig að það geti sinnt öllum nemendum vel. Stjórnvöld og sveitarfélög verða að fjárfesta í nauðsynlegum stuðningi og tryggja að skólafólk hafi þau verkfæri og þekkingu sem þarf til að sinna fjölbreyttum nemendahópi. Það felur meðal annars í sér að fjölga þarf stöðugildum kennara, sérkennara, þroskaþjálfa, iðjuþjálfa, sálfræðinga, talmeinafræðinga, námsráðgjafa og annarra sérfræðinga. Jafnframt þarf að efla þverfaglega samvinnu í samræmi við lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar allra barna. Viljum við ekki lifa í samfélagi þar sem öll börn og ungmenni fá tækifæri til að læra, tilheyra og verða virkir og fullgildir samfélagsþegnar? Þegar skóli án aðgreiningar skilar ekki þeim árangri sem hann getur skilað og á að gera er oft látið eins og vandamálið sé stefnan sjálf og sú hugmynd um réttlæti og samfélag tækifæra fyrir alla sem hún byggist á. En mér finnst það vera eins og að kvarta yfir því að sundlaug nýtist illa ef hún er bara hálffull af vatni en neita samt að fylla hana af vatni. Sundlaugin er þá augljóslega alls ekki vandmálið. Vandamálið er þá einfaldlega að við höfum ekki staðið okkur í að fylla hana af vatni. Höfundur var formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar árin 2021 til 2025. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Skóla- og menntamál Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun