Viðskipti innlent

Klakki, áður Exista, gjald­þrota

Árni Sæberg skrifar
Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, kenndir við Bakkavör, voru stærstu eigendur Exista á sínum tíma.
Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, kenndir við Bakkavör, voru stærstu eigendur Exista á sínum tíma.

Klakki ehf., sem hét áður Exista og var eitt stærsta félag landsins á árunum fyrir hrun, er gjaldþrota.

Í auglýsingu í Lögbirtingarblaði dagsins segir að segir að bú Klakka hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 23. október, með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur.

Frestdagur við gjaldþrotaskiptin sé 12. október síðastliðinn og skiptafundur verði haldinn 19. janúar næstkomandi. Skorað sé alla þá, sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur búinu eða eigna í umráðum þess, að lýsa kröfum sínum fyrir skiptastjóra í búinu innan tveggja mánaða frá birtingu innköllunar.

Klakki ehf. er eignarhaldsfélag sem komst í eigu innlendra og erlendra fjárfesta eftir nauðasamninga árið 2010. Þá hét félagið Exista ehf. Eini eigandi Klakka í dag er BLM fjárfestingar ehf., sem er alfarið í eigu Burlington Loan Management, írsks skúffufyrirtækis sem er fjármagnað og stýrt af bandaríska sjóðstýringarfyrirtækinu Davidson Kempner.

BLM fjárfestingar keyptu Klakka af Lindarhvoli, félagi utan um svokallaðar stöðugleikaeignir ríkisins, árið 2016 og kaupin leiddu af sér heljarinnar málaferli:

Sem áður segir var Exista eitt stærsta félag landsins á árunum fyrir hrun en meðal eigna þess voru stórir hlutir í VÍS, Bakkavör, Kaupþingi og Símanum. Samkvæmt ársreikningi Klakka fyrir síðasta ár var félagið svo gott sem eignalaust í lok ársins.

Stærstu eigendur og forsvarsmenn Exista á gullaldarárum félagsins voru bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir, sem ávallt eru kenndir við Bakkavör.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×