Viðskipti innlent

Hótelævintýri lauk með gjald­þrotum upp á milljarð

Árni Sæberg skrifar
Dmitrijs Stals er stofnandi og forstjóri Legendary Hotels & Resorts ehf.
Dmitrijs Stals er stofnandi og forstjóri Legendary Hotels & Resorts ehf. Aðsend

Skiptum er lokið á þrotabúi félagsins Legendary SPV Hella ehf., sem var í eigu Lettans Dmitrijs Stals. Félagið hét áður Hótel Hella ehf., en félag Stals keypti Hótel Hellu árið 2023 og stefndi á að umbreyta því í fjögurra stjörnu hótel með 68 herbergjum. Stals hafði háleit markmið um að reka tólf hótel hér á landi en kröfur í bú sex fyrirtækja hans nema alls rúmlega 1,1 milljarði króna.

Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að með úrskurði Héraðsdóms Suðurlands, uppkveðnum 06. mars 2024, hafi bú Legendary SPV Hella ehf. verið tekið til gjaldþrotaskipta. Skiptum hafi verið lokið þann 30. september 2026.

Kröfur í búið hafi numið alls 139 milljónum króna og aðeins hafi veðkröfur upp á 25 milljónir króna fengist greiddar. 

Líkt og fjallað er um í fréttinni hér að neðan tilkynnti Stals um metnaðarfulla hóteluppbyggingu á Hellu árið 2023 og boðaði slíka uppbyggingu um allt land í framhaldinu.

Svo virðist sem áætlanir hans hafi ekki gengið eftir en Viðskiptablaðið greindi frá því á dögunum að Hótel Hella hefði verið lokað um langt skeið og að fimm önnur félög Stals hefðu verið tekin til gjaldþrotaskipta, án þess að ein einasta króna fengist upp í lýstar kröfur.

Að 139 milljóna kröfum í bú Legendary SPV Hella ehf. meðtöldum nema kröfur í þrotabúin sex alls rúmlega 1,1 milljörðum króna.


Tengdar fréttir

Hætti fljótt við um­deilt þjónustu­gjald

Eigandi veitingahússins Legendary Nordic Restaurant á Hellu hefur ákveðið að hætta að rukka fimmtán prósent þjónustugjald. Hann hafði sagt gjaldið ætlað að mæta þeim mikla kostnaði sem fylgi veitingahúsarekstri á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×