Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar 28. október 2026 09:00 Flest okkar þekkja hvað íþróttir gefa börnum. Gleðina, vinatengslin, tilfinninguna að tilheyra liðinu og stoltið yfir því að öðlast nýja færni. Við Íslendingar erum stolt af íþróttastarfinu okkar, og það með réttu. En ef við ætlum að segja að íslenskt íþróttastarf sé í fremstu röð verðum líka að spyrja: Fá öll börn raunverulega tækifæri að tilheyra liðinu? Þegar verkefnið Allir með fór af stað árið 2023 var staðan alvarleg. Af rúmlega 3.000 börnum með fötlun, 17 ára og yngri, voru aðeins 120 skráð sem iðkendur í skipulögðu íþróttastarfi. Það þýðir að aðeins 4% barna með fötlun voru skráð í íþróttastarf en til samanburðar stunda um 85% allra 10 ára barna íþrótt með félagi. Frá 2023 hefur margt breyst. Sífellt fleiri íþróttafélög hafa opnað starf sitt fyrir börnum og ungmennum með ólíkar stuðningsþarfir og hefur skráningum því fjölgað úr 120 í yfir 300. Þátttökuhlutfall barna með fötlun í skipulögðu íþróttastarfi er því komið yfir 10%. Það er árangur sem við megum vera stolt af. Þetta sýnir hversu miklum árangri er hægt að ná. Við getum gert enn betur. Öll íþróttafélög þurfa ekki að hafa öll svörin frá fyrsta degi. Markmiðið er að við þorum að byrja. Að þjálfarar átti sig á því að þau hafa allt sem til þarf. Að félögin prófi sig áfram. Að foreldrar viti að dyrnar standi opnar og að börnin fái tækifæri til að finna þá íþrótt, þann hóp og það lið sem þau tilheyra. Þetta snýst um vináttuna, sjálfstraustið, gleðina og þátttöku í samfélaginu. Það er ómetanlegt að fá að mæta á æfingu á þriðjudegi eins og allir hinir, og að klæðast treyju síns hverfisfélags. Nú í haust ætlum við að gera þessi tækifæri sýnilegri. Vitundarvakning er farin af stað um allt land og laugardaginn 31. október fara Allir með leikarnir fram í Laugardalshöll. Þar geta börn og ungmenni með sérþarfir prófað fjölbreyttar íþróttir og kynnst því starfi sem þeim stendur til boða. Við hvetjum fjölskyldur til að koma og prófa. Við hvetjum þjálfara og forsvarsmenn íþróttafélaga til að koma og kynna sér möguleikana. Og við hvetjum okkur öll til að skoða eigið hugarfar og leggja verkefninu lið. Íþróttir eru fyrir alla. Öll börn eru hluti af liðinu. Kynnið ykkur vitundarvakninguna á allirmed.is. Höfundur er verkefnastjóri hjá Allir með, en það er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íþróttir barna Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skoðun Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Sjá meira
Flest okkar þekkja hvað íþróttir gefa börnum. Gleðina, vinatengslin, tilfinninguna að tilheyra liðinu og stoltið yfir því að öðlast nýja færni. Við Íslendingar erum stolt af íþróttastarfinu okkar, og það með réttu. En ef við ætlum að segja að íslenskt íþróttastarf sé í fremstu röð verðum líka að spyrja: Fá öll börn raunverulega tækifæri að tilheyra liðinu? Þegar verkefnið Allir með fór af stað árið 2023 var staðan alvarleg. Af rúmlega 3.000 börnum með fötlun, 17 ára og yngri, voru aðeins 120 skráð sem iðkendur í skipulögðu íþróttastarfi. Það þýðir að aðeins 4% barna með fötlun voru skráð í íþróttastarf en til samanburðar stunda um 85% allra 10 ára barna íþrótt með félagi. Frá 2023 hefur margt breyst. Sífellt fleiri íþróttafélög hafa opnað starf sitt fyrir börnum og ungmennum með ólíkar stuðningsþarfir og hefur skráningum því fjölgað úr 120 í yfir 300. Þátttökuhlutfall barna með fötlun í skipulögðu íþróttastarfi er því komið yfir 10%. Það er árangur sem við megum vera stolt af. Þetta sýnir hversu miklum árangri er hægt að ná. Við getum gert enn betur. Öll íþróttafélög þurfa ekki að hafa öll svörin frá fyrsta degi. Markmiðið er að við þorum að byrja. Að þjálfarar átti sig á því að þau hafa allt sem til þarf. Að félögin prófi sig áfram. Að foreldrar viti að dyrnar standi opnar og að börnin fái tækifæri til að finna þá íþrótt, þann hóp og það lið sem þau tilheyra. Þetta snýst um vináttuna, sjálfstraustið, gleðina og þátttöku í samfélaginu. Það er ómetanlegt að fá að mæta á æfingu á þriðjudegi eins og allir hinir, og að klæðast treyju síns hverfisfélags. Nú í haust ætlum við að gera þessi tækifæri sýnilegri. Vitundarvakning er farin af stað um allt land og laugardaginn 31. október fara Allir með leikarnir fram í Laugardalshöll. Þar geta börn og ungmenni með sérþarfir prófað fjölbreyttar íþróttir og kynnst því starfi sem þeim stendur til boða. Við hvetjum fjölskyldur til að koma og prófa. Við hvetjum þjálfara og forsvarsmenn íþróttafélaga til að koma og kynna sér möguleikana. Og við hvetjum okkur öll til að skoða eigið hugarfar og leggja verkefninu lið. Íþróttir eru fyrir alla. Öll börn eru hluti af liðinu. Kynnið ykkur vitundarvakninguna á allirmed.is. Höfundur er verkefnastjóri hjá Allir með, en það er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF.
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun