Tvær lægðir á leiðinni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. október 2026 07:18 Önnur lægð er væntanleg í nótt og hin annað kvöld. Vísir/Vilhelm Von er á tveimur lægðum til landsins, einni í nótt og annarri seint annað kvöld. Sú seinni er frekar máttlítil.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þar segir að í dag verði strekkings vestanátt á Austurlandi fram eftir degi, en annars hægari vindur og það kólnar heldur. Þurrt víðast hvar síðdegis, fyrir utan smá vætu á norðausturhorninu. Í nótt nálgast svo næsta lægð úr suðvestri. Hún veldur hvassri suðaustanátt sunnan- og vestantil í fyrramálið, með rigningu og hlýnandi veðri. Seinnipartinn lægir væntanlega aftur og styttir upp, fyrst suðvestanlands. Seint annað kvöld kemur svo frekar máttlítil lægð upp að suðausturströndinni og fer svo áfram til norðurs. Með henni mun rigna allmikið, einkum á Suðausturlandi. Á föstudag er svo útlit fyrir sunnan- og suðvestanátt, víða 5-13 m/s, en líkur á allsnörpum vindhviðum á Norðurlandi. Skúraleiðingar, en yfirleitt þurrt norðaustan- og austanlands. Heldur kólnandi í bili. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á fimmtudag:Suðaustan 13-20 m/s með talsverðri rigningu sunnantil, en hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hægari sunnanátt og skúrir vestantil undir kvöld, en bætir í úrkomu fyrir austan. Hiti 6 til 12 stig.Á föstudag:Suðlæg átt 5-13 m/s, en hvassari á stöku stað fyrir norðan. Skúrir eða slydduél sunnan- og vestantil, en styttir upp á Norður- og Austurlandi fyrir hádegi. Hiti 3 til 8 stig.Á laugardag:Suðvestanátt 5-13 og skúrir eða slydduél, en bjart norðaustan- og austanlands. Heldur svalara.Á sunnudag:Suðvestanátt með vætu, en úrkomulítið norðaustantil. Bætir í rigningu um kvöldið á vesturhelmingi landsins. Heldur hlýnandi.Á mánudag:Suðaustanátt með vætu vestast og syðst, annars þurrt og bjartviðri norðaustantil. Hiti víða 5 til 10 stig.Á þriðjudag:Útlit fyrir suðlæga átt, væta sunnan- og vestantil framan af degi, en þurrt annars staðar. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Sjá meira