Veður

Norðan kaldi og snjó­koma til fjalla

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Esjan.
Esjan. Vísir/Vilhelm

Í dag má búast við norðan kalda eða strekkingi víðast hvar en austan Öræfa má reikna með allhvössum eða hvössum vindi fram að hádegi. Á láglendi er búist við rigningu eða slyddu en snjókomu til fjalla.

„Úrkomusvæði sem kemur úr austri mjakast yfir landið í dag með úrkomu, en sunnan- og vestanlands verður úrkomulítið þangað til í kvöld. Þó gæti hann hangið þurr syðst á landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Hiti verður á bilinu 0-7 stig.

Víðast hvar lægir með kvöldinu og á morgun og reiknað er með hægri breytilegri átt. Úrkomusvæðið verður yfir norðanverðu landinu en smám saman dregur úr úrkomu. Sunnanlands verður að mestu þurrt og skýjað með köflum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á mánudag:

Breytileg átt, 3-10 m/s og rigning, en slydda eða snjókoma til fjalla á norðanverðu landinu en dregur smám saman úr úrkomu. Skýjað með köflum sunnan heiða. Hiti 0 til 6 stig að deginum.

Á þriðjudag:

Norðlæg átt, 8-15 m/s, hvassast norðvestantil og austast. Rigning eða súld, en úrkomulítið á Suðausturlandi. Hiti 4 til 9 stig.

Á miðvikudag:

Hæg breytileg átt, en norðvestlæg átt, 5-13 austast fram á daginn. Rigning eða slydda nyrst, en styttir upp seinnipartinn. Annars úrkomulítið og bjart með köflum suðaustanlands. Hiti 1 til 7 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×