Íslenski boltinn

Sjáðu fimmu Hrafn­hildar Ásu í lokaumferðinni

Andri Broddason skrifar
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var markahæsti leikmaður Bestu deildar kvenna.
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var markahæsti leikmaður Bestu deildar kvenna. Guðmundur/Vísir

Lokaumferð Bestu deildar kvenna fór fram í gær og þar sem lítið var verið að spila upp á þar sem Breiðablik tryggði Íslandsmeistaratitilinn í síðustu umferð. Eftir harða baráttu við FH í allt sumar hafði Breiðablik betur á lokasprettinum.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var í mikilli baráttu um gullskóinn fyrir tímabilið en það hægðist aðeins á markaskoruninni eftir því sem leið á tímabilið. Hún náði þó að þagga í gagnrýnisröddum þar sem hún skoraði fimm mörk í lokaleiknum og tryggði þannig gullskóinn. Hún skoraði 19 mörk í deildinni og því á hún gullskóinn fyllilega skilið.

Klippa: Breiðablik - FH 6-2

ÍBV tók á móti Stjörnunni þar sem ÍBV komst snemma yfir með marki frá Olgu Sevcova og tvöfaldaði svo Allson Patricia Clark 2-0 sigur í fyrri hálfleik leiksins. Stjarnan endaði því í neðsta sæti efri hluta deildarinnar en ÍBV náði frábærum árangri og endaði í þriðja sæti deildarinnar.

Klippa: ÍBV - Stjarnan 2-0

Þróttur náði að tryggja sér fjórða sæti deildarinnar eftir hörkuleik gegn Grindavík/Njarðvík en leikurinn hefði auðveldlega geta fallið í báðar áttir. Þróttur náði þó að nýta tækifærin sín betur þrátt fyrir að gefa Grindavík/Njarðvík tækifæri á að koma til baka eftir klaufalegt sjálfsmark. Þróttur getur þó verið ánægt með tímabilið þar sem liðið varð bikarmeistari og fór eflaust mikil orka frá liðinu þangað.

Klippa: Þróttur - Grindavík/Njarðvík 3-2



Fleiri fréttir

Sjá meira


×