Sport

Heimir sagður á leið til ÍA og Martinez óð á súðum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
HeimirBesta
vísir/guðmundur

Breytingar eru sagðar yfirvofandi á Akranesi í fótboltanum og það logar allt stafna á milli hjá Man. Utd eftir viðtal við Lisandro Martinez í gær.

Argentínumaðurinn steig fram fyrir skjöldu eftir tap í Madrid og lét stjórnarmenn félagsins heyra það. Verður áhugavert að sjá hvernig Man. Utd mun bregðast við í kjölfarið.

Líftími Michael Carrick sem stjóri félagsins gæti svo verið á enda ef liðið tapar um helgina gegn Leeds.

Stelpurnar okkur pökkuðu Króatíu saman á Laugardalsvelli í gær og eru nú aðeins tveimur leikjum frá því að komast í fyrsta skipti á HM.

Heimir Guðjónsson er sterklega orðaður við ÍA sem næsti þjálfari liðsins þó svo ekkert hafi verið gefið upp um framtíð Lárusar Orra Sigurðssonar, núverandi þjálfara liðsins.

Heimir var að stýra Fylki og var lengi vel orðaður við Stjörnuna. Stjarnan réð aftur á móti Rúnar Pál Sigmundsson sem þjálfara í gær.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×