Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Smári Jökull Jónsson skrifar 14. október 2026 07:45 Fjölskylda stendur hér utan við fjölbýlishús sem ráðist var á í Kænugarði í nótt. Vísir/AP Rússar gerðu umfangsmiklar dróna- og eldflaugaárásir á Kænugarð í nótt og eru um 600.000 manns án rafmagns í borginni. Þá gerðu Rússar einnig árásir á lestarinnviði í því sem yfirmaður lestarfyrirtækis úkraínska ríkisins kallaði „stórfellda bylgju árása“.
Í færslu á X segir Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti að Rússar hafi notað yfir 39 eldflaugar og 120 árósardróna í árásum á orkuinnviði og aðra mikilvæga innviði bæði í höfuðborginni Kænugarði og Kharkív. Í færslunni skrifar hann að árásirnar hafi beinst sérstaklega gegn þeim innviðum sem vopnahlé Bandaríkjaforseta eigi að ná yfir. Selenskí skrifar að Rússar hafi aldrei áður sýnt Bandaríkjamönnum jafn áberandi virðingarleysi og nú. „Rússland sér yfirlýsingar Bandaríkjaforseta ekki sem sterkar,“ skrifar Selenskí og bætir við að fyrir utan þau 600.000 sem séu án rafmagns sé líklegt að rafmagnsleysið gæti orðið enn víðtækara. „Við biðjum Bandaríkin og alla í heiminum sem ekki líta hingað með blinda auganu að bregðast við og gera það af krafti. Rússar hafa klúðrað tækifærinu til að draga úr spennu og hafa augljóslega valið að halda áfram þessu brjálaða útrýmingarstríði.“ Tvö látin í Kænugarði Meðal annars var skotið á Darnytska hitaveitu- og raforkuverið sem sér Kænugarði bæði fyrir hita og rafmagni. Selenskí segir að engin viðvörun hafi borist áður og þá hafi íbúðarhús einnig orðið fyrir árásum. Að sögn Vítalí Klitskó, borgarstjóra Kænugarðs, létust tveir og tuttugu og einn særðist í eldflaugaárás á fjölbýlishús í borginni seint í gærkvöldi og að „nokkrar orkustöðvar“ hafi orðið fyrir árásum. Yfirvöld hvöttu íbúa til að halda fyrir í neyðarskýlum þegar rauð viðvörun var gefin út vegna eldflaugaógnar. Ráðist á járnbrautakerfið Þá voru einnig gerðar árásir á úkraínska járnbrautarinnviði en Oleksandr Pertsovskí, forstjóri lestarfyrirtækis úkraínska ríkisins, sagði að um „stórfellda bylgju árása“ hefði verið að ræða. Engin slys urðu á fólki en árásirnar náðu meðal annars til svæða nálægt Kharkív, Kænugarðs og Vinnytsia-héraðs. Járnbrautarkerfið gegnir lykilhlutverki í samgöngum í stríðinu, ekki síst þar sem skemmdir á vegum og höfnum takmarka ferðir fólks, en kerfið tengir saman stærstu borgir landsins. Rússar gerðu einnig drónaárás á olíustöð í borginni Lutsk í vesturhluta Úkraínu þar sem eldur kviknaði. Úkraínumenn hafa að eigin sögn ráðist á rússneskar olíuhreinsistöðvar síðan Trump lýsti yfir orkuvopnahléi um helgina, en aðeins til að svara árásum Rússa. Selenskí mun síðar í dag eiga fund með Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands í Downingstræti 10 í Lundúnum þar sem þeir munu meðal annars ræða hraðari afhendingu loftvarnabúnaðar til Úkraínu.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Bandaríkin Bretland Donald Trump Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Sjá meira