Erlent

Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé

Smári Jökull Jónsson skrifar
Tilkynning Trump um orkuvopnahlé Rússa og Úkraínu kom sjálfum Úkraínuforseta í opna skjöldu.
Tilkynning Trump um orkuvopnahlé Rússa og Úkraínu kom sjálfum Úkraínuforseta í opna skjöldu. Vísir/AP

Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti kom af fjöllum þegar tilkynning barst frá Donald Trump um að Bandaríkin og Úkraína hefðu samþykkt orkuvopnahlé í stríðinu. Hvorki stjórnvöld í Kænugarði né Moskvu hafa tjáð sig opinberlega um málið.

Donald Trump tilkynnti um vopnahléið á samfélagsmiðli sínum Truth Social án þess að gefa miklar upplýsingar um útfærsluna, annað en að það tæki gildi þegar í stað.

Tilkynning Trump á Truth Social.

Í tilkynningu Trump segir að bæði ríki hafi fallist á að hætta árásum á orkuinnviði og lauk færslunni með orðunum „rjúfið þetta ekki!“.

Trump hefur að undanförnu þrýst á Úkraínumenn að hætta árásum á rússneska olíuinnviði sem Kænugarður hefur sagt að sé lykilatriði til að draga úr tekjum Rússa til stríðsrekstursins. Trump tilkynnti á föstudag um samkomulag Bandaríkjanna og Rússa um útflutning olíu, samkomulag sem Selenskí gagnrýndi harðlega. Trump sagði í kjölfarið að Úkraína þyrfti nýjan forseta sem væri tilbúinn að semja um endalok stríðsins.

„Við erum tilbúin og munum fallast á það“

Selenskí sagði fyrr í dag að hann væri reiðubúinn til að stöðva árásirnar ef Rússar hættu að ráðast á orkuinnviði í Úkraínu en þær árásir hafa færst í aukana síðustu vikur.

Samkvæmt Barak Ravid, fréttamanni Axios, komu tíðindin um orkuvopnahlé Selenskí hins vegar í opna skjöldu. Er haft eftir Trump að ef Rússar samþykki vopnahlé á orkusviðinu þá muni Úkraína gera það líka.

„Ef Trump forseti hefur samið um þetta við Pútín, vinsamlegast látið okkur vita þegar vopnahléið tekur gildi. Við erum tilbúin og munum fallast á það,“ á Selenskí að hafa sagt.

Þá tjáði Selenskí sig á samfélagsmiðlinum X þar sem hann sagðist hafa rætt við Mark Carney forseta Kanada, Alexander Stubb forseta Finnlands og Mark Rutte framkvæmdastjóra NATO um tilkynningu Trump og sagðist bíða þess að fá frekari fregnir frá Bandaríkjamönnum.

Tilkynning Trump kom í kjölfar þess að Selenskí sagðist í viðtali við ABC fréttastofuna vera reiðubúinn að boða til kosninga ef Pútín samþykkti sextíu daga vopnahlé. Voru ummælin svar við gagnrýni Trumps um að Úkraína þyrfti nýjan forseta.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Selenskí opnar á kosningar gegn vopnahléi en hann tjáði sig á svipaðan hátt í viðtali við Axios í febrúar. Þá er þetta ekki í fyrst sinn sem Trump tilkynnir um vopnahlé að öðrum aðilum samkomulags forspurðum.


Tengdar fréttir

Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir

Bæði Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á innviði hvor annars. Er það eftir að Donald Trump staðhæfði að ráðamenn í báðum ríkjum hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði. Ekkert samkomulag virðist hafa verið í höfn þegar Bandaríkjaforseti lýsti þessu yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×