Erlent

Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús

Smári Jökull Jónsson skrifar
Flóðið í dag er annað hamfaraflóðið í Nepal á innan við tveimur mánuðum.
Flóðið í dag er annað hamfaraflóðið í Nepal á innan við tveimur mánuðum. Vísir/Getty

Fimm er saknað og um fimmtíu var bjargað eftir skyndiflóð í ánni Budhi Gandaki í Nepal. Á myndbandi sést þar sem flóðið ryður niður húsum og brú úr vegi sínum en um fimmtán hundruð létust í flóðum í landinu í síðasta mánuði.

Flóðið hreif með sér hús og brýr auk þess að valda skemmdum á hluta vatnsaflsvirkjunar að sögn yfirvalda. Um fimmtíu manns hefur verið bjargað af bökkum Budhi Gandaki-árinnar í Gorkha-héraði í miðhluta landsins og er fimm saknað.

Á myndbandi af flóðinu sést þegar vatnsflaumurinn æðir niður dal og hrífur með sér heila húsaþyrpingu. 

Flóðið skall á þegar fjölskyldur bjuggu sig undir fyrsta dag Dashain-hátíðarinnar sem er ein mikilvægasta hátíð ársins í Nepal. Hafa fjölskyldur neyðst til að flýja heimili sín og margir vita ekki hvar þær geta fengið öruggt skjól eða nauðsynjar.

Að sögn almannavarnarstofnunar Nepal hreif flóðið með sér tólf hús og nokkrar hengibrýr. Á einum stað hækkaði vatnsborð árinnar á örfáum klukkustundum úr tveimur metrum í tæplega átta og hálfan metra að sögn yfirvalda.

Í ágúst varð gríðarlegt jökulhrun í Nepal sem olli fordæmalausum skyndiflóðum. Um 150 þúsund manns létust í þeim flóðum og er þúsunda enn saknað. Sérfræðingar telja þó að flóðið nú sé mun minna og hafi farið hægar fram en hamfaraflóðin í ágúst.

Orsök flóðsins eru enn óljós en sumir telja að skriða hafi um tíma stíflað ána eða þverá hennar með þeim afleiðingum að uppsafnað vatn braust fram.

Hjálparsamtökin Save the children hafa sent neyðarteymi á vettvang og segja að samfélög á svæðinu hafi ekki haft tækifæri til að standa á fætur á nýjan leik eftir flóðin í ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×