Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Samúel Karl Ólason skrifar 7. október 2026 23:32 Stjórnarher Eþíópíu náði um helgina tökum á borginni Mekelle í Tigray-héraði. Nú eru hermenn frá Eritreu sagðir stefna í átt að borginni en þeir munu hafa komið uppreisnarmönnum í Frelsisfylkingunni til aðstoðar. Getty/Anadolu Hermenn frá Eritreu hafa verið sendir til Tigray-héraðs í Eþíópíu en þar hefur stjórnarherinn gert árásir á hermennina, sem munu hafa verið sendir til að stuðnings uppreisnarmanna Frelsisfylkingarinnar svokölluðu og bandamanna þeirra. Átök brutust út í Eþíópíu í síðasta mánuði og er óttast að þau geti dreift frekar úr sér í Afríku.
Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar lýstu því yfir í síðasta mánuði að þeir hefðu gert bandalag við aðrar fylkingar í Eþíópíu og saman ætluðu þessar fylkingar að velta ríkisstjórninni í Addis Ababa úr sessi. Báðar hliðar saka hina um að hafa rofið friðarsamkomulag frá 2022. Sjá einnig: Aftur stríð í Eþíópíu Það samkomulag batt enda á gífurlega blóðuga borgarastyrjöld milli sömu fylkinga sem hafði staðið yfir í um tvö ár. Þá barðist her Eritreu með ríkisstjórn Eþíópíu en núna er herinn með Frelsisfylkingunni í liði. Eritrea var á árum áður eitt af héruðum Eþíópíu en öðlaðist sjálfstæði árið 1993, eftir um þrjátíu ára baráttu fyrir frelsi. Ríkin háðu mannskæð átök sín á milli frá 1998 til 2000. Árið 2018 tóku ríkin upp stjórnmálasamband á nýjan leik og fékk Abiy friðarverðlaun Nóbels vegna þessa. Samskipti Eþíópíu og Eritreu hafa versnað umtalsvert á undanförnum fjórum árum og þá að miklu leyti vegna þess að Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu, hefur lýst yfir áhuga á að eignast eina af höfnum Eritreu við strendur Rauðahafs. Ríkin slitu formlegum samskiptum í síðustu viku. Árásir gerðar á hermennina Í frétt BBC segir að sveitir Frelsisfylkingarinnar hafi um helgina hörfað frá Mekelle, sem er helsta borg Tigray-héraðs, og henni sé nú stjórnað af stjórnarhernum. Blaðamenn ríkisútvarpsins breska hafa rætt við nokkra íbúa héraðsins sem segjast hafa séð fjölda flutningabíla flytja hermenn frá Eritreu inn í héraðið. Einhverjir sögðu útlit fyrir að hermennirnir væru á leið til bæjar sem heitir Edaga Hamus og liggur mitt á milli borganna Mekelle og Adigrat, sem er enn í höndum Frelsisfylkingarinnar. Fregnir af þessum hermannaflutningum hafa verið studdar af myndefni sem á að hafa verið tekið á svæðinu. Íbúar sögðu einnig frá því að stjórnarherinn hefði gert drónaárásir á flutningabílana sem hafi verið notaðir til að flytja hermennina. Vera hermannanna hefur ekki fallið í kramið hjá óbreyttum borgurum Tigray-héraðs, sem muna flestir vel eftir fjölmörgum ódæðum sem hermenn frá Eritreu voru sakaðir um fyrr á áratugnum. Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar stjórnuðu Eþíópíu á árum áður, þar til Abiy Ahmed tók við embætti forsætisráðherra landsins árið 2018. Sú ríkisstjórn var endurkjörin í kosningum í sumar, en þær kosningar voru hunsaðar af stjórnarandstöðuflokkum landsins. Árið 2020 blossuðu upp átök milli ríkisstjórnarinnar og Frelsisfylkingarinnar og voru stríðandi fylkingar sakaðar um grimmileg ódæði. Embættismaður í ríkisstjórn Abiy sagði í nýlegu viðtali að her Eritreu væri að taka beinan þátt í átökunum. Margir þeirra hefðu verið felldir eða handsamaðir og hét hann því að Eritreu yrði refsað fyrir innrásina. Reuters hafði eftir upplýsingaráðherra Eritreu í dag að hermenn ríkisins væru ekki í Eþíópíu. Hann hélt því fram að um áróður væri að ræða sem væri ætlað að réttlæta innrás Eþíópíu í Eritreu seinna meir. Markmiðið væri að hernema eina af höfnum Eritreu, eins og Abiy hefði ítrekað hótað á undanförnum árum. Barist víðar í landinu Bardagar eiga sér ekki eingöngu stað í Tigray-héraði, þar sem átökin fóru langmest fram í síðasta stríði. Nú hefur Frelsisfylkingin gert bandalag við fleiri fylkingar sem halda til víðar í landinu og hafa bardagar einnig átt sér stað í öðrum héruðum. Mikið er um átök í norðausturhluta Afríku. Þau umfangsmestu eru borgarastyrjöldin í Súdan, sem hefur áður teygt anga sína til Eþíópíu. Meðal annars hafa borist fregnir af því að í Eþíópíu hafi verið reistar leynilegar herbúðir á vegum Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Þar munu málaliðar og uppreisnarmenn hafa verið þjálfaðir til að taka þátt í borgarastyrjöldinni og þá gegn ríkisstjórn Súdan. Austur af Eþíópíu er svo Sómalía, þar sem óöld hefur ríkt um árabil. Abyiy hefur einnig reitt ríkisstjórn þess lands til reiði með því að reyna að gera samkomulag við stjórnendur Somaliland, sem vilja sjálfstæði frá Sómalíu, um aðgang fyrir Eþíópíu að höfn þar.
Eþíópía Eritrea Hernaður Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Fleiri fréttir Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Sjá meira