Fótbolti

Manchester City-goðsögn hættir við að hætta

Andri Broddason skrifar
David Silva hefur óvænt gengið til liðs við Sha Tin sem spilar í Hong Kong.
David Silva hefur óvænt gengið til liðs við Sha Tin sem spilar í Hong Kong. Laurence Griffiths/Getty Images

David Silva, fyrrum leikmaður Manchester City, hefur tekið skóna af hillunni en hann hefur gengið til liðs við Sha Tin sem leikur í úrvalsdeildinni í Hong Kong.

Silva lagði upprunalega skóna á hilluna árið 2023 eftir að hann meiddist á undirbúningstímabili með Real Sociedad. Hann sleit krossband og sá sér ekki fært að geta spilað almennilega og ákvað því að leggja skóna á hilluna.

Hann átti virkilega sigursælan feril hjá Manchester City en hann var hjá félaginu í tíu ár. Hann vann ensku úrvalsdeildina fjórum sinnum með City en tímasetningin á endurkomu hans er óheppileg þar sem Manchester City var dæmt sekt í 114 kæruliðum fyrir nokkrum vikum.

Sha Tin er í áttunda sæti úrvalsdeildarinnari í Hong Kong þegar aðeins fjórar umferðir eru búnar. Næsti leikur liðsins er 18. október og vona stuðningsmenn Sha Tin að David Silva verði klár fyrir leikinn.

Það mun þó teljast vera bjartsýni þar sem það er mikil aðlögun fyrir David Silva að fara til lands sem er langt frá Spáni. Einnig er óvíst í hvernig líkamlegu standi Silva verður þegar hann mætir á æfingar með félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×