Íslenski boltinn

Ibrahimagic fram­lengir við Víking

Andri Broddason skrifar
Tarik Ibrahimagic spilar ekki meira á tímabilinu en mun verða samningsbundinn Víkingum til ársins 2029.
Tarik Ibrahimagic spilar ekki meira á tímabilinu en mun verða samningsbundinn Víkingum til ársins 2029. Guðmundur/Vísir

Tarik Ibrahimagic hefur framlengt samningi sínum við Víking til ársins 2029. Þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.

Ibrahimagic kom til Víkings sumarið 2024 frá Vestra og náði hann strax að stimpla sig inn í liðið. Hann er 25 ára gamall og var keyptur til Vestra á sínum tíma frá Danmörku. Hann hefur spilað stóran þátt í Íslandsmeistaratitlunum sem Víkingur vann bæði árið 2025 og 2026 og er stefnan hans sett á að vinna fleiri titla með liðinu.

Tarik er þessa stundina að jafna sig á meiðslum sem hann varð fyrir í Evrópuleikjum með Víkingi í sumar og mun því ekki leika meira með félaginu á þessu tímabili. Hann mun þó verða klár í vetur og má búast við að hann komi tvíefldur til leiks á næsta tímabili.

Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi, er ánægður með framlenginguna og í tilkynningu Víkings segist hann hlakka til þess að sjá hann aftur á vellinum.

„Tarik hefur sýnt það frá fyrsta degi hvað í honum býr. Hann er leikmaður sem þjálfarar treysta, sama hvar á vellinum hann er settur, og hann hefur vaxið mikið hjá okkur. Það er mikilvægt fyrir félagið að halda leikmönnum af hans gæðum og karakter.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×