Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Valur Páll Eiríksson skrifar 4. október 2026 14:16 Lúðvík Gunnarsson mun stýra U21 liðinu í Færeyjum, ef okkar menn komast þangað. Guðmundur/Vísir Lúðvík Gunnarsson, þjálfari U21 árs landsliðs Íslands, vonast eftir því að liðið komist ytra á morgun. Liðið fór í fýluferð til Keflavíkur í morgun og flugi þess aflýst fyrir mikilvægan leik. Það var huggun harmi gegn hjá Lúðvík að komast á körfuboltaleik hjá syni sínum. „
Við vorum bara komnir að hliðinu þegar að við fengum upplýsingar um að fluginu hefði verið aflýst. Þannig að þetta var bara aftur niður, sækja töskurnar og aftur í bæinn,“ segir Lúðvík í samtali við Vísi. „Nú erum við bara að bíða og vinna í því að finna flug því við þurfum að reyna að koma okkur þarna út fyrir leik á þriðjudaginn og við þurfum eiginlega að gera það með öllum tiltækum ráðum,“ segir Lúðvík. Lokaumferðin er fram undan í undankeppni EM 2027 hjá íslenska liðinu og sigur dugar mögulega fyrir umspili um sæti á EM. Liðið þarf að treysta á sigur Frakklands á Sviss til að taka umspilssætið. „Það eru skilaboðin frá UEFA. Þannig að nú eru Gulli liðsstjóri (Guðlaugur Gunnarsson, starfsmaður KSÍ) og Jöri (Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ), þeir eru að reyna að finna eitthvað út úr þessu,“ segir Lúðvík og bætir við: „Við vitum ekkert eins og staðan er akkúrat núna. Við getum mögulega fengið flug á morgun en við vitum það ekki alveg. Staðan er ekkert skárri veðurfarslega séð held ég. En það verður bara að koma í ljós hvað þessir snillingar geta gert,“ segir Lúðvík en samkvæmt snöggri skoðun blaðamanns er veðurspáin raunar verri í Færeyjum á morgun en í dag. Þá lentu flugvélar frá Kaupmannahöfn í Þórshöfn í dag án vandræða á meðan vél Icelandair sat föst í Keflavík. Einmitt. Er, er stress yfir þessu? „Nei, í rauninni ekki. Ég held að við veljum okkur það bara hvernig við ætlum að horfa á þetta. Þetta er bara svona. Við ráðum ekkert við þetta og við erum bara rólegir akkúrat eins og staðan er í dag,“ segir Lúðvík. Hvernig er með liðið, þú veist, er einhver æfing í dag eða er að menn bara sendir heim? „Við æfðum mjög vel í gær og það stóð til að taka æfingu í Færeyjum í dag, bara svona rétt aðeins að liðka menn til eftir ferðalag og annað. Þannig að nei, við ætlum ekki að æfa í dag og svo sjáum við bara til. Þetta verður bara svolítið að koma í ljós eftir því hvernig hlutirnir þróast.“ Á meðan landsliðsmenn héldu heim til sín og bíða tíðinda eftir flugi þá komst Lúðvík á leik sonar síns á körfuboltamóti. „Ég náði síðustu leikjunum á körfuboltamóti hjá syni mínum þannig að það var svona bót í máli,“ segir Lúðvík hress.
Landslið karla í fótbolta KSÍ Færeyjar Flug Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Sjá meira