Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Valur Páll Eiríksson skrifar 3. október 2026 13:57 Heimir týjar sig af fundinum eftir að honum var slitið. Stephen McCarthy/Sportsfile via Getty Images Sérkennilegar spurningar ísraelskra blaðamanna, þar á meðal einhverjar sem áttu ekkert skilt við fótbolta, ollu því að blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar var slitið snemma. Þá þurfti að koma einum blaðamanni burt í öryggisfylgd.
Líkt og greint var frá á Vísi fyrr í dag sauð upp úr eftir blaðamannafund Írlands fyrir leik við Ísrael í Þjóðadeild karla á morgun. Írar treysta sér ekki að taka við Ísraelum heima fyrir og því fer leikurinn fram fyrir luktum dyrum í Serbíu. Þar fór blaðamannafundurinn fram í dag og það vakti athygli írskra blaðamanna að hvergi var að sjá umsjónaraðila frá UEFA. Slíkur er viðstaddur alla blaðamannafundi í kringum landsleiki þjóða í keppnum á vegum sambandsins, þar á meðal á Laugardalsvelli. Incredible scenes at Heimir Hallgrimsson's press conference this morning, which came to an abrupt end when it was disrupted by an Israeli journalist making bizarre and unfounded allegations against Irish players. pic.twitter.com/WsunljS1lE— Off The Ball (@offtheball) October 3, 2026 Nokkuð var liðið á fundinn þegar bera fór á furðulegum spurningum frá ísraelskum blaðamönnum, þar á meðal um flugrán í vél sem var á leið frá Dúbaí til Ísrael í vikunni. Því næst tók blaðamaður orðið og hugðist spyrja út í meint kynþáttaníð leikmanns írska liðsins í garð leikmanns Ísraela. Frægt er að stuðningsmenn Ísraels beindu apahljóðum að hörunddökkum leikmanni Írlands í leik liðanna á sunnudaginn var en samkvæmt þessum blaðamanni kallaði leikmaður Írlands kollega sinn hjá Ísrael apa. Það eru ásakanir sem írska knattspyrnusambandið hefur neitað staðfastlega og upplýsingafulltrúi írska sambandsins þurfti að hafa sig allan við að reyna að stýra fundinum. @irishfootballfantv After seeing this I really hope our lads go out and pump these again tomorrow. Adam Idah was the one racially abused but this guy tries to change the narrative. 🎥 X/amirzaky11 ♬ original sound - Irish Football Fan TV Honum var svo að endingu slitið vegna framgangs ísraelskra fréttamanna og fundurinn færður í annað rými á vellinum þar sem írskir blaðamenn fengu að klára þær spurningar sem þeir áttu eftir að bera undir Heimi. Að Írar fái fleiri spurningar eða sérfund er í samræmi við reglulgerðir UEFA en ísraelski blaðamaðurinn sem bar spurningarnar upp brást ókvæða við. Hann ríghélt í hljóðnemann sem hann hafði fengið og neitaði að skila honum. Þá reyndi að hann troða sér inn á aukafundinn fyrir írsku blaðamennina en var vísað á dyr. Að endingu þurfti öryggisgæslu til að fylgja honum á brott. Aukafundurinn fór fram í búningsklefa á svæðinu.Stephen McCarthy/Sportsfile via Getty Images
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Írland Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Sjá meira