Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 N1 5. október 2026 15:18 Sigríður Ósk indriðadóttir, Vöruflokkastjóri hjólbarða hjá N1 segir Michelin gera ríkar kröfur til samstarfsaðila sinna. Michelin gerir strangar kröfur til gæða og þjónustu hjá samstarfsaðilum sínum um allan heim. Nýjasta gæðakerfi Michelin ber heitið Michelin Expert Center og tekur N1 það upp sem hluta af langvarandi og farsælu samstarfi fyrirtækjanna.
N1 hefur um árabil starfað samkvæmt gæðakerfum Michelin og mun áfram fylgja þeim kröfum og stöðlum sem Michelin setur hverju sinni. Michelin Expert Center tekur við af alþjóðlega gæðakerfinu Michelin Quality Dealer, sem nú hefur verið lagt niður. „Markmiðið með innleiðingu gæðakerfisins er að tryggja að N1 uppfylli allar kröfur Michelin um faglega þjónustu, ráðgjöf, vandað vöruframboð og háan gæðastaðal á hjólbarðaverkstæðum félagsins,“ segir Sigríður Ósk Indriðadóttir, vöruflokkastjóri hjólbarða hjá N1. Hún segir mikla áherslu lagða á að sú vinna sem lá að baki Quality Dealer fyrirkomulaginu og þeir gæðastaðlar sem byggðir höfðu verið upp glatist ekki. Eric Malaussene, Viðskiptastjóri Michelin (til vinstri) og Alexey Urubkov (til hægri), Sölustjóri N1 á Flugvöllum. „Michelin gerir ríkar kröfur til samstarfsaðila sinna og N1 leggur áherslu á að fylgja þeim gæðastöðlum sem Michelin setur hverju sinni. Hugmyndafræðin á bak við Expert Center frá Michelin er að gæði felist ekki eingöngu í því hvaða dekk eru undir bílnum, heldur einnig í ráðgjöfinni sem viðskiptavinurinn fær, þekkingu starfsfólks, vinnubrögðum á verkstæðinu og þeim búnaði og ferlum sem notaðir eru við þjónustuna,“ segir Sigríður Ósk. Áhersla er lögð á að viðskiptavinir hafi aðgang að vönduðu úrvali hjólbarða og fái faglega ráðgjöf við að velja réttu dekkin fyrir ökutækið, notkunina og íslenskar aðstæður. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til þeirra verkstæða sem falla undir Expert Center. Þar skipta fagleg vinnubrögð, þekking starfsmanna, ástand búnaðar, verklag og almenn gæði þjónustunnar miklu máli. „Viðskiptavinurinn getur treyst á að fagmennska og gæði séu í fyrirrúmi hvort sem um er að ræða val á hjólbörðum, ráðgjöf eða þjónustu á verkstæði.“ Með nýja samstarfinu heldur N1 áfram þeirri vegferð sem hófst með Quality Dealer, en tekur hana jafnframt skrefinu lengra. Expert Center verður þannig sýnilegur gæðastimpill fyrir þá viðskiptavini sem vilja vandaða vöru, faglega ráðgjöf og fyrsta flokks hjólbarðaþjónustu.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira