Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Sindri Sverrisson skrifar 2. október 2026 10:32 Ljóst er að Víkingur eða Þór/KA fellur í kvöld og mögulega bæði lið. vísir/Anton Þrjú lið berjast um síðasta örugga sætið í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Valskonur gætu fallið í fyrsta sinn og þurfa að treysta á jafntefli í Víkinni á milli Víkings og Þórs/KA sem bæði eiga á hættu að falla.
Í lokaumferð neðri hluta Bestu deildarinnar í kvöld mætast annars vegar Víkingur og Þór/KA og hins vegar Fram og Valur. Báðir leikir hefjast klukkan 18 og verður vegleg útsending frá Víkinni á Sýn Sport Ísland þar sem einnig verður fylgst með gangi mála í Úlfarsárdal. Staðan er tiltölulega einföld í kvöld: Þór/KA: Heldur sér uppi með sigri en fellur með tapi. Jafntefli dugar ef Valur vinnur ekki Fram. Víkingur: Heldur sér uppi með sigri en fellur annars. Valur: Heldur sér aðeins uppi ef liðið vinnur Fram á meðan Þór/KA og Víkingur gera jafntefli. Víkingar hafa blásið í herlúðra fyrir kvöldið og verður frítt inn á leikinn í Víkinni í boði Aton og Íslandsbanka, vegleg dagskrá fyrir leik og hamingjustund á Fossinum eftir leik. Stundum þarf ekkert að segja, bara horfa. Kíkið á þessa veislu sem er verið að setja upp á föstudag. TAKK ❤️🖤 #AlliráFossinn pic.twitter.com/aGBauZR9X4— Víkingur Fótbolti (@vikingurfc) September 29, 2026 Þá hafa Víkingar verið virkir á samfélagsmiðlum að hvetja Fossvogsbúa til að fjölmenna á völlinn og á meðal þeirra sem ætla að styðja við Víkinga í kvöld er ÍR-ingurinn Sveppi sem ætlar að taka mömmu sína með sér. Víkin á morgun? Sveppi ætlar að mæta með mömmu sína. Veisla! En þú? 🖤❤️ pic.twitter.com/lWKtFvaWPs— Víkingur Fótbolti (@vikingurfc) October 1, 2026 Eins og fyrr segir eiga Valskonur á hættu að falla úr efstu deild í fyrsta sinn í sögunni og raunar höfðu þær aldrei svo mikið sem verið í fallsæti fyrir þetta tímabil. Þór/KA hefur sömuleiðis verið í A-deild samfleytt frá og með árinu 2006 og því um mikil tímamót að ræða ef Akureyringar falla í kvöld. Víkingar, sem náðu 5. sæti í fyrra, eru hins vegar á sínu þriðja ári í efstu deild eftir að hafa komist upp úr B-deildinni haustið 2023.
Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Fram Valur Víkingur Reykjavík Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Sjá meira