Draumadagar Emelíu: Sjáðu fyrsta mark hennar í Meistaradeild Evrópu Sindri Sverrisson skrifar 2. október 2026 08:31 Emelía Óskarsdóttir fékk faðmlag eftir að hafa skorað sitt fyrsta mark í Meistaradeild Evrópu. Getty/Morgan Harlow Eftir meiðslamartröðina sem Emelía Óskarsdóttir mátti ganga í gegnum svo snemma á sínum fótboltaferli hafa síðustu dagar verið draumi líkastir. Hún er mætt í íslenska landsliðið og skoraði í gær í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn.
Hin tvítuga Emelía var frá keppni í meira en 400 daga eftir að hafa slitið krossband í hné en sneri aftur á völlinn með liði sínu HB Köge fyrir tæpu ári síðan. Síðan þá hefur leiðin legið upp á við og í síðustu viku var Emelía valin í fyrsta sinn í A-landsliðið, fyrir leikina mikilvægu við Króatíu í HM-umspilinu 9. og 13. október. Emelía skoraði svo í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu í gær, í 5-1 sigri danska liðsins Köge gegn Servette frá Sviss. Markið skoraði Emelía á 88. mínútu þegar hún hristi af sér varnarmann og fékk sendingu frá Söruh Thygesen og kláraði færið sitt af öryggi. Markið má sjá hér að neðan en gestirnir frá Sviss voru afar ósáttir við að það fengi að standa og töldu Emelíu hafa brotið af sér. Sigurinn ætti að gefa Köge byr undir báða vængi eftir sárgrætilegt 1-0 tap gegn Arsenal á útivelli í fyrsta leik keppninnar. Næsti leikur Köge er við Nordsjælland á sunnudaginn, í dönsku úrvalsdeildinni, áður en hún kemur til móts við íslenska landsliðið sem ferðast á mánudaginn til Króatíu og mætir þar heimakonum næsta föstudag. Seinni leikurinn við Króatíu er svo á Laugardalsvelli 13. október.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Fótbolti Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira