Upp­gjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik

Hjörvar Ólafsson skrifar
Sara Rún Hinriksdóttir spilaði sinn fyrsta deildarleik í KR-búningum í kvöld. 
Sara Rún Hinriksdóttir spilaði sinn fyrsta deildarleik í KR-búningum í kvöld.  Vísir/Pawel

KR-ingar báru sigurorð af Stjörnunni þegar liðin áttust við fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta á Meistaravöllum í Vesturbænum í kvöld.

Heimakonur, sem mæta með sterkt lið til leiks á þessu keppnistímabili, hófu leikinn sterkt og skoruðu fyrstu 11 stig leiksins. Sara Rún Hinriksdóttir, sem gekk til liðs við KR frá Keflavík í sumar, stimplaði sig strax inn í KR-liðið þegar hún skoraði fyrstu stig Vestubæjarliðsins í leiknum með þriggja stiga körfu. 

Stjarnan með Diljá Ögn Lárusdóttur í broddi fylkingar náði svo áttum um miðjan fyrsta leikhluta og staðan var 20-17 gestunum úr Garðabænum í vil eftir fyrsta leikhluta. 

Rebekka Rut Steingrímsdóttir átti fínan leik fyrir KR. Vísir/Pawel

Leikmenn KR endurheimtu forystuna í öðrum leikhluta en varnarleikur heimakvenna hertist í þeim leikhluta og það skilaði því að heimakonur fóru með sex stiga forskot, 41-35, inn í búningsklefa í hálfleik. 

Jafnræði var með liðunum í þriðja leikhluta en KR-liðið var sterkara á svellinu þegar á hólminn var komið í fjórða leikhluta og innbyrti að lokum sjö stiga sigur.

Daníel Andri Halldórsson vill sjá betri varnarleik hjá KR-liðinu í framhaldinu. Vísir/Pawel

Daníel Andri: Sóknin góð en vörnin slök

„Það er jákvætt að ná að skora meira en 90 stig en að sama skapi er ég ekki sáttur við varnarleikinn. Við þurfum að gera mun betur þar. Þegar þú spilar ekki betri vörn en við gerðum í kvöld þá er þér refsað í þessari deild,“ sagði Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, að leik loknum.

„Við erum hins vegar ánægð með að ná að landa sigri og það er ýmislegt sem var jákvætt í frammistöðunni. Tölfræðin lítur að mörgu leyti vel út en við þurfum aftur á móti að fara yfir hlutina á varnarhelmingnum fram að næsta leik,“ sagði Daníel Andri enn fremur. 

„Þó svo að við séum með nokkur ný andlit í leikmannahópnum þá afsakar það ekki skort á talanda og ákefð í varnarleiknum. Við munum vinna í þessu og bæta okkur jafnt og þétt. Ég var hins vegar ánægður með stemminguna í stúkunni og þetta var heilt yfir gott kvöld,“ sagði hann. 

Ólafur Jónas: Frammistaðan góð miðað við aðstæður

„Miðað við að Xaviera er á öðrum fætinum í þessum leik og hvernig við komum inn í mótið þá getum við gengið þokkalega sáttar frá borði. Við viljum auðvitað alltaf vinna og ætluðum okkur sigur en það er margt í spilamennskunni sem við getum byggt á fyrir komandi leiki,“ sagði Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, að leik loknum.

„,Við sýndum á köflum flotta frammistöðu á báðum endum vallarins og það vantaði ekkert upp á baráttuna. Diljá Ögn dró vagninn í sóknarleiknum og það var ánægjulegt að sjá hversju vel hún spilaði,“ sagði Ólafur Jónas þar að auki. 

„Það þarf samt sem áður að slípa nokkra hluti og mér finnst liðið eiga mikið inni. Við verðum betri þegar laskaðir leikmenn komast í betra stand og við verðum búin að vinna í ákveðnum hlutum. Liðið gæti verið á betri stað en ég hef engar áhyggjur af því að við munum ekki koma okkur þangað þegar á líður leiktíðina,“ sagði hann. 

Ólafur Jónas Sigurðsson var sáttur við sumt en óánægður með annnað. Vísir/Pawel

Atvik leiksins

Tilþrif Söru Rúnar og Diljá Agnar á sitt hvorum enda vallarins glöddu auga blaðamanns mest að þessu sinni. Boltameðferð þeirra var til fyrirmyndar og margar körfur þeirra eftir snoturt knattrak og snarpar fintur. 

Stjörnur og skúrkar

Dazia Lawrence var stigahæst hjá KR með 27 stig og Sara Rún fylgdi fast á hæla hennar með sín 25 stig en báðar voru þær að spila sína fyrstu deildarleik í KR-búningnum. Þess utan reif Sara Rún niður 12 fráköst. 

Rebekka Rut skilaði 17 stigum á tölfuna og mataði samherja sína með sex stoðsendingum. Aaliyah Pittsova setti svo niður 15 stig og spilaði á köflum fína vörn. 

Dilja Ögn og Dazia Lawrence háðu skemmtilegar rimmur í leiknum í kvöld. Vísir/Pawel

Hjá Stjörnunni var Dilja Ögn fremst á meðal jafningja en hún skoraði 29 stig og margar körfurnar voru eftir flott einstaklingsframtak hennar. 

Stina Josefine Almqvist og Agnes María Svansdóttir skoruðu hvor um sig 19 stig og hirtu báðar sjö fráköst. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Davið Kristján Hreiðarsson, Birgir Orn Hjörvarsson og Guðmundur Ragnar Björnsson, létu leikinn flæða vel og dæmdu hann heilt yfir vel. Þeir fá sjö í einkunn fyrir fínasta kvöldverki sitt.

Stemming og umgjörð

Vel mætt að vanda í Vesturbænum að vanda. KR hefur á að skipa góðu liði sem Vesturbæingar eru spenntir fyrir. Egill Ástráðsson, formaður körfuboltadeildar KR og afmælisbarn dagsins, sá til þess að það væsti ekki um blaðamenn á meðan á leiknum stóð. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira