Líklegra að Ísland verði í næstneðsta flokki Sindri Sverrisson skrifar 29. september 2026 11:32 Orri Steinn Óskarsson og félagar í íslenska landsliðinu eiga fyrir höndum afar mikilvægan leik í kvöld. vísir/Anton Ísland leikur afar mikilvægan leik við Lúxemborg í kvöld í C-deild Þjóðadeildarinnar og getur með sigri komist í efsta sæti riðilsins. Toppsætið er dýrmætt í baráttunni um sæti á næsta stórmóti.
Eftir jafntefli á heimavelli við Eistland er Ísland með eitt stig en Lúxemborg er efst í riðlinum með þrjú stig, eftir 2-1 útisigur gegn Búlgaríu. Sigurlið riðilsins fer beint upp í B-deild Þjóðadeildarinnar og liðið í 2. sæti í umspil um sæti í B-deildinni. En sigur í riðlinum hjálpar líka mikið til í baráttunni um sæti á EM 2028. Barátta við San Marínó eða Ungverjaland um EM-sæti? Undankeppnin fyrir EM fer fram á næsta ári og dregið verður í riðla 6. desember. Fyrir dráttinn verður liðunum raðað í fimm styrkleikaflokka sem reikna má með að byggist á lokastöðunni í Þjóðadeildinni. Eftir jafntefli Íslands við Eistland er núna talið líklegast að Ísland verði í fjórða styrkleikaflokki, þeim næstneðsta, og líklegra en áður að Lúxemborg komist í þriðja styrkleikaflokk. Þetta er niðurstaða hermunarlíkans Football Meets Data sem segir núna 66,5% líkur á að Ísland verði í fjórða flokknum en 33,5% líkur á að Ísland komist í þriðja flokk. 🧮 Projected pots for 🌍 EURO 2028 qualifiers (as of 28 Sep):Pot 1: 🇪🇸🇫🇷🇵🇹🇳🇱🇬🇷🏴🇭🇷🇩🇰🇳🇴🇧🇪🇮🇹🇩🇪Pot 2: 🇷🇸🇹🇷🏴🇨🇿🇨🇭🇸🇪🇦🇹🇺🇦🇧🇦🏴☘️🇽🇰Pot 3: 🇮🇪🇭🇺🇸🇮🇵🇱🇬🇪🇲🇰🇷🇴🇮🇱🇲🇪🇸🇰🇦🇱🇱🇺Pot 4: 🇮🇸🇫🇮🇪🇪🇰🇿🇦🇲🇧🇾🇧🇬🇫🇴🇨🇾🇱🇻🇲🇩🇸🇲Pot 5: 🇦🇿🇲🇹🇱🇹🇦🇩🇬🇮🇱🇮 (Pot 5 locked 🔒) pic.twitter.com/ZNLLSIC7Yo— Football Meets Data (@fmeetsdata) September 28, 2026 Til að skilja betur mikilvægi þess að vera í 3. styrkleikaflokki í stað 4. flokks, í undankeppni EM, má benda á að miðað við núverandi stöðu gæti Ísland til dæmis dregist í riðil með Póllandi eða Ungverjalandi yrði liðið í 4. flokki, en í staðinn með San Marínó eða Færeyjum ef liðið yrði í 3. flokki. Andstæðingarnir úr fyrsta og öðrum flokki verða eflaust alveg nógu erfiðir fyrir íslenska liðið svo að ekki bætist við öflugt lið úr þriðja flokki, í baráttunni um tvö efstu sæti undanriðilsins. Svona gætu styrkleikaflokkarnir litið út fyrir dráttinn í undankeppni EM 2028. Miðað við núverandi stöðu yrði Ísland í 4. flokki og myndi fá andstæðinga úr flokki 1, 2 og 3, og mögulega úr 5 (helmingur riðlanna tólf verður með fjórum liðum og helmingur með fimm liðum).Football Meets Data Sigur í riðlinum gæti komið Íslandi í EM-umspil Í undankeppni EM verða liðin dregin í 12 riðla, úr 5 styrkleikaflokkum. Sigurlið hvers riðils kemst beint á EM og átta bestu liðin í 2. sæti komast einnig beint á EM. Hin fjögur liðin sem enda í 2. sæti fara í umspil ásamt annað hvort fjórum eða átta bestu liðunum sem unnu sinn riðil í Þjóðadeildinni án þess að komast á EM í gegnum undankeppnina. Sigur í riðli Íslands í Þjóðadeildinni nú í haust gæti því mögulega dugað til að komast í umspil um sæti á EM ef liðið þarf á því að halda eftir undankeppni EM á næsta ári. Reglurnar um umspilið eru flóknari en ella vegna þess að tvö sæti á EM eru frátekin fyrir þá gestgjafa sem ná bestum árangri í undankeppninni án þess að vinna sig inn á EM. Gestgjafarnir verða England, Skotland, Wales og Írland. Þrír möguleikar eru í stöðunni: Allir fjórir gestgjafarnir komast beint á EM í gegnum undankeppnina. Þá spila átta lið í umspili, í fjórum tveggja leikja einvígjum þar sem sigurlið hvers einvígis kemst á EM. Þrír gestgjafar komast beint á EM í gegnum undankeppnina. Þá spila tólf lið í umspili um þrjú laus sæti, í þremur aðskildum fjögurra liða umspilsleiðum. Tveir eða færri gestgjafar komast beint á EM í gegnum undankeppnina. Þá spila átta lið um tvö laus sæti, í tveimur aðskildum fjögurra liða umspilsleiðum. Leikur Lúxemborgar og Íslands er í kvöld klukkan 18:45. Bein útsending hefst á Sýn Sport klukkan 18:15.
Þjóðadeild karla í fótbolta EM 2028 í fótbolta Landslið karla í fótbolta Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira