Heimir gaf frí Valur Páll Eiríksson skrifar 29. september 2026 09:03 Heimir gaf leikmönnum írska landsliðsins frí í gær. Getty Eftir þunga og langa daga, auk 3-0 sigurs á Ísrael í Ungverjalandi gaf Heimir Hallgrímsson leikmönnum írska karlalandsliðsins verðskuldað frí í gær. Enn er írska liðið þó í auga stormsins, enda stutt í næstu viðureign við Ísrael sem verður engu minna milli tannana á fólki.
Írland vann 3-0 sigur á Ísrael í fyrrakvöld eftir skrautlegan aðdraganda. Liðið flaug heim nóttina eftir leik og mætir Austurríki í Dyflinn á fimmtudag áður en næsti leikur við Ísrael, „heimaleikur“ Írland sem fram fer fyrir luktum dyrum í Serbíu bíður sunnudaginn eftir. Á blaðamannafundi sem haldinn var á laugardaginn, eftir fjögurra tíma fundarhöld leikmanna og starfsmanna írska knattspyrnusambandsins, sagði Paul Cooke, forseti írska sambandsins, að ekkert væri endanlega ákveðið með seinni leik Írlands við Ísrael sem fram fer í Serbíu á sunnudag. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, var einnig spurður út í það eftir leik sunnudagsins. „Það er ekki 100 prósent ákveðið hvað við gerum,“ sagði Heimir sem rímaði við svör Cooke frá laugardeginum. „Við munum gefa leikmönnum dags frí þegar við komum heim til Írlands. Þeir geta eytt deginum með fjölskyldu sinni og vinum áður en við förum að undirbúa leikinn við Austurríki. Vonandi klárum við það vel og svo er hægt að halda samtalinu áfram,“ sagði Heimir enn fremur. Írar munu því æfa í dag og á morgun fyrir leikinn á fimmtudag og Heimir mun sitja fyrir svörum á blaðamannafundi í Dyflinn á morgun. Ætla má að spurningar blaðamanna snúi töluvert meira að málum tengdum Ísrael en leiknum við Austurríki. Þá er tíðinda að vænta af máli Adam Idah og meints kynþáttaníðs ísraelskra stuðningsmanna í hans garð. Dómari leiksins í Ungverjalandi gat ekki tekið málið til skoðunar eða minnst á það í skýrslu sinni eftir leik þar sem leikmenn Írlands sem bentu honum á köllin sögðu ekki hreint út orðið rasismi eða kynþáttaníð. Írska knattspyrnusambandið er hins vegar með málið til skoðunar og mun senda inn skýrslu til UEFA, finni það sönnunargögn um níð í garð leikmanna írska liðsins.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Írland Þjóðadeild karla í fótbolta Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Sjá meira