Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Sindri Sverrisson skrifar 28. september 2026 13:17 Guðni Eiríksson og Fanndís Friðriksdóttir eru sammála um að breyta þurfi hvernig leikjum er stillt upp fyrir næstu leiktíð. Skjáskot/Sýn Sport Sérfræðingarnir í Bestu mörkunum sýndu gagnrýni Guðna Eiríkssonar, þjálfara FH, skilning eftir að hann hraunaði yfir fyrirkomulag leikjadagskrárinnar í Bestu deild kvenna.
Guðni og hans konur í FH eru í hörðum titilslag við Breiðablik sem nú er komið með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar. Blikakonur unnu 2-1 sigur gegn ÍBV í Eyjum á laugardaginn en FH tapaði svo 3-2 á útivelli gegn Grindavík/Njarðvík í gær, í 20. umferð. Breiðablik hefur í síðustu tveimur umferðum spilað degi á undan FH og leikirnir í lokaumferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar dreifðust á þrjá daga. Þessu er Guðni vægast sagt ekki hrifinn af: „Mér finnst bara fyrirkomulagið á þessu fáránlegt. Það er bara mín skoðun. Ég skil ekki að leikir séu ekki á sama tíma. Það er fáránlegt,“ sagði Guðni eftir tapið í Njarðvík í gær. „Það breytir því þó ekki hvernig þessi leikur fer en mér finnst þetta fyrirkomulag, að það sé ekki leikið á sama tíma, vera mjög sérstakt og ekki bara núna heldur eins í lokaleik fyrir skiptingu. Þá er ekki leikið á sama tíma heldur og ég skil ekki ástæðuna,“ sagði Guðni. Klippa: FH-ingar ósáttir við leikjaskipulagið Fanndís Friðriksdóttir og Björn Sigurbjörnsson tóku undir gagnrýni Guðna þó að tónninn væri vissulega mildari: „Mér finnst þetta skrýtið því þetta er alltaf þannig að Breiðablik er á undan. Allt í lagi ef þetta væri í báðar áttir. Ég skil Guðna vel,“ sagði Fanndís. „Það er ekkert sanngjarnt við að annað liðið sé alltaf að elta. Hins vegar finnst mér ekki heldur að leikir eigi alltaf að vera á sama tíma. Það tíðkast ekkert úti í knattspyrnuheiminum eða í Bestu deild karla. Mér finnst það ekki vera aðalmálið. En að Breiðablik sé alltaf á undan og FH á eftir… hvort tveggja getur verið vont,“ sagði Björn áður en Fanndís tók við: „Ég myndi alltaf segja að það sé verra að vera eftir á. Þá veistu að þú ert upp við vegg. Um leið og hitt liðið er búið að vinna og þú þarft að bíða í sólarhring.“ Þrjár umferðir eru nú eftir af Bestu deild kvenna og munu FH og Breiðablik spila sína leiki á sama tíma í þeim öllum. Liðin mætast í lokaumferðinni, mögulega í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn.
Besta deild kvenna Bestu mörkin FH Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Fleiri fréttir Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Sjá meira