Lækka verð á þúsund vörum Bjarki Sigurðsson skrifar 28. september 2026 10:06 Hagar reka verslanir Bónuss og Hagkaupa. Vísir/Anton Brink Verð hefur verið lækkað tímabundið á um þúsund vörum í verslunum Bónuss og Hagkaups. Með þessu vilja Hagar, eigandi verslananna, styðja við samstöðu aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda um að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Vöruverðið lækkaði um tvö prósent og gildir til áramóta. Í tilkynningu frá Högum segir að lækkunin nái til stórs hluta innflutnings Haga. Um sé að ræða almenna hilluvöru, kælivöru, drykkjarvörur, hreinlætisvörur og snyrtivörur. Í Bónus tekur lækkunin til fimmtán til tuttugu prósent af vöruúrvali. „Lægri verðbólga og lægri vextir eru hagsmunamál sem snertir samfélagið allt, frá heimilum til fyrirtækja landsins. Hátt vaxtastig þyngir m.a. fjármagnskostnað, dregur úr fjárfestingargetu og veikir kaupmátt landsmanna. Eitt stærsta hagsmunamál samfélagsins um þessar mundir er að ná niður vöxtum og verðbólgu og hefur þörfin á samstilltu átaki sjaldan verið meiri,“ segir í tilkynningunni. Lækkunin nær meðal annars til vara frá Euroshopper, Salling og Santa Maria. „Rekstur Bónuss er og verður okkar mikilvægasta framlag í baráttunni gegn verðbólgu í matvöru. Staðan nú er þó óvenjuleg og það skiptir miklu að samstaða náist milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um að verja forsendur kjarasamninga. Við viljum leggja sérstaklega af mörkum til þess. Þess vegna lækkum við nú verð á stórum hluta vöruúrvals okkar og tryggjum að það hækki ekki fram að áramótum,“ er haft eftir Finni Oddssyni, forstjóra Haga, í tilkynningunni. Hann hvetur stjórnvöld til að ganga á undan í baráttunni gegn verðbólgunni með góðu fordæmi. „Hagar skorast ekki undan ábyrgð og ég treysti því að aðgerð okkar verði öðrum hvatning til dáða og að hún stuðli þannig að verðstöðugleika, friði á vinnumarkaði og lækkun vaxta, öllum til hagsbóta,“ er haft eftir Finni.
Hagar Neytendur Verðlag Fjármál heimilisins Verslun Matvöruverslun Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Sjá meira