Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Freyja Þórisdóttir skrifar 27. september 2026 23:14 Frá vinstri: Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF; Elísabet Ronaldsdóttir, klippari og samstarfskona heiðursverðlaunahafanna til fjöldamargra ára; heiðursverðlaunahafarnir David Leitch og Kelly McCormick; Rúnar Freyr Gíslason, formaður Menningarráðs Reykjavíkur. Aðsend Leikstjórinn David Leitch og framleiðandinn Kelly McCormick hlutu í gær, laugardaginn 26. september, heiðursverðlaun Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík fyrir framúrskarandi listfengi. Verðlaunin voru afhent við móttöku RIFF og Reykjavíkurborgar í Listasafni Reykjavíkur.
Kemur þetta fram í tilkynningu en þar segir einnig að það hafi verið Rúnar Freyr Gíslason, formaður Menningarráðs Reykjavíkur, sem afhenti þeim verðlaunin. Færði sig aftur fyrir myndavélina Leitch og McCormick séu meðal heiðursgesta alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar RIFF í ár og hafi sett sterkan svip á hasarkvikmyndir samtímans, „þar sem kraftmikil sjónræn frásögn, húmor og úthugsuð áhættuatriði fara saman“. Leitch á að baki langan feril sem áhættuleikari og stjórnandi áhættuatriða áður en hann sneri sér að leikstjórn. Meðal þekktustu mynda hans eru Atomic Blonde, Deadpool 2, Bullet Train og The Fall Guy. „Í verkum hans nýtur nákvæm þekking á hreyfingu, hrynjandi og líkamlegri frammistöðu sín í hasaratriðum sem þjóna jafnt persónusköpun og framvindu sögunnar,“ segir í tilkynningunni. McCormick hefur sem framleiðandi staðið að baki myndum á borð við Nobody, Violent Night, Bullet Train og The Fall Guy. Þau hjónin hafi með samstarfi sínu skapað vettvang fyrir hasarmyndir þar sem frumlegar hugmyndir og metnaðarfull útfærsla haldist í hendur. Meistaraspjall veiti gestum innsýn Þá sameinuðust kraftar leikstjórnar, framleiðslu og klippingar í meistaraspjallinu „Hjartað í hasarnum“, þar sem þau komu fram ásamt kvikmyndaklipparanum Elísabetu Ronaldsdóttur, sem klippti báðar myndirnar og er samstarfskona þeirra til margra ára. Í spjallinu var sjónum beint að því hvernig persónur, tónn, tilfinningar og samvinna móta kvikmynd, frá fyrstu hugmynd að fullbúnu verki, og hvað fær áhorfendur til að tengjast sögunni. „Heimsókn þeirra veitir því hátíðargestum RIFF einstakt tækifæri til að kynnast fólkinu á bak við nokkrar af þekktustu hasarmyndum síðari ára og fá innsýn í þá fjölþættu sköpun sem liggur að baki.“ Hér fyrir ofan má sjá stilklu úr kvikmyndinni Bullet Train þar sem Brad Pitt fer með aðalhlutverkið.
RIFF Kvikmyndagerð á Íslandi Kvikmyndahús Bíó og sjónvarp Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira